4.500 manns skráðir hjá einkarekinni heilsugæslu

Að heilsugæslunni standa 10 heimilislæknar og á henni starfa 6 …
Að heilsugæslunni standa 10 heimilislæknar og á henni starfa 6 hjúkrunarfræðingar þar af 2 ljósmæður, 5 ritarar og framkvæmdastjóri. Allt er þetta starfsfólk með mikla reynslu og mikinn áhuga á að bæta og styrkja heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu að sögn SVÞ. AFP

4.500 manns hafa skráð sig hjá Heilsugæslustöðinni Höfða sem var opnuð 1. júní. Ætlunin er að sinna að minnsta kosti þrefalt þeim fjölda. Þetta kemur fram í fréttablaði SVÞ, Samtaka verslunar og þjónustu.

Þar segir að Heilsugæslan Höfða, sem stendur að Bíldshöfða 9, væri fyrsta heilsugæslustöðin til að opna á höfuðborgarsvæðinu í mörg ár og er stofnsett á grundvelli útboðs sem fram fór á s.l. ári þar sem boðinn var út rekstur þriggja heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu.

Samtökin fagna þessari einkareknu heilsugæslustöð og segist vona að þetta sé fyrsta skrefið í áframhaldandi þróun á því sviði.

Gjaldataka eins og á öllum öðrum heilsugæslustöðvum

Um áramótin voru innleiddar breytingar hjá Sjúkratryggingum Íslands þannig að fólk getur valið sér heimilislækni og heilsugæslustöð óháð því hvar þeir búa. „Mikilvægt er að kynna þessa breytingu betur, en nokkuð hefur vantað á að fólk geri sér grein fyrir þessum breytingum á réttindum sínum til að sækja heilsugæsluþjónustu þar sem það óskar,“ segir í fréttablaði SVÞ.

Allir skjólstæðingar Heilsugæslunnar Höfða, sem þess óska, munu fá sinn eigin heimilislækni og geta þá einnig skráð fjölskylduna alla hjá sama lækni.  Gjaldtaka er eins og á öllum öðrum heilsugæslustöðvum og ákvörðuð af Sjúkratryggingum Íslands.

Opin móttaka milli 8 og 10 á morgnanna

Í fréttabréfinu segir að lögð verði áhersla á gott aðgengi og stuttan biðtíma. 

„Þess vegna hefur sú nýjung verið innleidd að auk hefðbundinna tímabókana og síðdegisvakta frá kl. 16 -18 verði opin móttaka milli kl 8 og 10 á morgnana þar sem óþarft er að bóka tíma fyrirfram, ætlað fyrir stutt eða bráð erindi. Þannig verður stuðlað að því að engum sé vísað frá og skjólstæðingar þurfi ekki að leita annað nema í algerri neyð utan dagvinnu. Heilsugæslan Höfða mun þannig leitast við að gera heilsugæsluna að raunverulegum fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu,“ segir í fréttabréfinu en heilsugæslan mun jafnframt bjóða upp á alla grunnþjónustu eins og mæðravernd, ungbarnavernd, hjúkrunarmóttöku og einnig verður ákveðin áhersla á lífstílssjúkdóma og vinnu í teymum fyrir skjólstæðinga með langvinna sjúkdóma.

Að heilsugæslunni standa 10 heimilislæknar og á henni starfa 6 hjúkrunarfræðingar þar af 2 ljósmæður, 5 ritarar og framkvæmdastjóri. Allt er þetta starfsfólk með mikla reynslu og mikinn áhuga á að bæta og styrkja heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu að sögn SVÞ. 

„Vonandi er opnun þessarar einkareknu heilsugæslustöðvar fyrsta skrefið í áframhaldandi þróun á því sviði og við megum sjá fleiri slíkar stöðvar opna á næstunni. Slíkt væri í fullu samræmi við þá þróun sem átt hefur sér stað í nágrannalöndum okkar að undanförnu, en bæði í Noregi og Svíþjóð hafa verið tekin afgerandi skref í átt til aukins einkareksturs í heilsugæslu,“ segir í fréttabréfinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK