Reginn semur um kaup á 2.700 fermetra reit við Austurhöfn

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reginn hf. hefur skrifað undir samkomulag um einkaviðræður við fyrirtækið Austurhöfn ehf. um kaup félagsins á öllu atvinnuhúsnæði á reit 5b á lóðinni Austurbakka 2 í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða 2.700 m2 verslunar- og veitingarými á horni Geirsgötu og Austurhafnar. Byggingarnar sem munu hýsa áðurnefnd verslana- og veitingarými eru afmarkaðar af Gömlu höfninni, Marriott EDITION, fimm stjörnu hóteli sem er nú í byggingu, fyrirhuguðum höfuðstöðvum Landsbankans og Hafnartorgi. Rýmið tengist bílakjallara sem nær frá Hörpu niður á Lækjatorg.

Þetta kemur fram í tilkynningu Regins til Kauphallarinnar.

Um er að ræða verslunar- og veitingarými að langmestu á jarðhæð, en að litlum hluta í kjallara og 2. hæð. „Kaupin ef af verða falla vel að fjárfestingastefnu félagsins sem felur í sér að auka hlut félagsins m.a. í hágæða atvinnuhúsnæði á sterkum markaðssvæðum,“ segir í tilkynningunni en miðað er við að rýmin verði afhent tilbúin til útleigu um mitt ár 2019.

„Tilgangur viðskiptanna ef af verður, er að styrkja viðskiptahugmyndir Regins á svæðinu enn frekar. Félagið hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að verslana- og þjónusturými á þessu einstaka svæði í miðbæ Reykjavíkur verði hugsuð, skipulögð og rekin sem ein heild. Með því næst betur að tryggja rétta samsetningu og gæði þeirra eininga sem saman mynda fyrirhugaðan verslana- og þjónustukjarna,“ segir í tilkynningunni en fyrir er Reginn kaupandi af öllu verslana- og veitingarými á Hafnartorgi sem er staðsett á reitum 1 og 2 á lóðinni Austurbakka 2.

Þá segir jafnframt að umfang viðskiptanna hvað varðar fjárhag og stærð, er lítið í samanburði við eignasafn Regins og muni hafa óveruleg áhrif á fjárhag og afkomu félagsins. Samkomulagið er þó með ýmsum fyrirvörum m.a. um áreiðanleikakannanir og samþykki stjórnar Regins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK