Regnkápur og annar regnfatnaður virðist ætla að vera mjög vinsæll þetta sumarið en það hefur verið frekar blautt og sólarlítið, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Í samtali við mbl.is segja forsvarsmenn tveggja fyrirtækja sem selja útivistarklæðnað að regnfatnaðurinn hafi verið sérstaklega vinsæll í sumar.
„Ellingsen hefur í gegnum tíðina verið mjög stór aðili í regnfatnaði og þetta sumar hefur verið sérstaklega mikil sala,“ segir Sölvi Snær Magnússon, markaðsstjóri Ellingsen, í samtali við mbl.is. „Það er bókstaflega hver týpan á fætur annarri að seljast upp.“
Sölvi segir mikla sölu á hvers kyns gerðum af regnfatnaði, pollagöllum á börn, regnkápum á fullorðna og unglinga og svo eru regnslár líka vinsælar.
Sölvi telur að veðrið spili inn í þessa mikla sölu, en síðustu vikur hafa verið frekar blautar. Hann segir sem dæmi að salan á regnfatnaði núna sé meiri en síðasta sumar.
Hann bendir á að þá séu aðrar vörur líka vinsælar í versluninni eins og regnheldir göngujakkar, vatnsheldar skeljar og gönguskór. „Það er ekki síður mikilvægt að vera þurr í lappirnar og það eru ekki bara gúmmístígvél sem geta veitt þá vörn,“ segir Sölvi. „Við erum með allar týpur af regnheldum fatnaði.“
„Við höfum klárlega fundið fyrir auknum áhuga á regnkápum og skeljum í sumar,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður í samtali við mbl.is. Þá segir hann fyrirtækið einnig hafa fengið frábær viðbrögð við vatnsheldum tæknilegum jökkum og kápum úr Gore-Tex sem eru hannaðar fyrir dags daglega notkun í óútreiknanlegu íslensku veðri.
Fannar bendir á að yfirskrift sumarherferðar fyrirtækisins hafi verið „beðið eftir sumri“ eða „waiting for summer since 1926“. „Það virðist passa ágætlega við veðrið hingað til,“ segir Fannar.