Dregið hefur úr fjölgun launþega á Íslandi milli ára. Þeim hefur fækkað í sjávarútvegi en launagreiðendum hefur fjölgað í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í frétt sem Hagstofa Íslands birti á heima síðu sinni.
Í fréttinni segir að á 12 mánaða tímabili, frá júlí 2016 til júní 2017 hafi að jafnaði verið 17.166 launagreiðendur á Íslandi. Þeim fjölgaði um 4,4% frá síðustu 12 mánuðum á undan en á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 184.200 einstaklingum laun sem er aukning um 4,9% aukning samanborið við 12 mána tímabil ári fyrr.
Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þó hefur dregið úr hraða vaxtar og launþegum hefur fækkað í sjávarútvegi.
Í júní voru 2.557 launagreiðendur og um 12.900 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.500 (13%) samanborið við júní 2016. Í júní voru 1.809 launagreiðendur og um 29.300 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 2.500 (9%) á einu ári. Launþegum í heild hefur á sama tíma fjölgað um 6.700 (4%).
Hagstofan setur fyrirvara við tölurnar vegna þess að þær innihalda ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.