Baldur Dýrfjörð hefur verið ráðinn til Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, en hann starfaði áður hjá Norðurorku hf. og þar á undan sem starfsmannastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, sem bæjarlögmaður hjá Akureyrarbæ og lögfræðingur Íslandsbanka.
Fram kemur í fréttatilkynningu að Baldur hafi, sem fulltrúi Norðurorku hf., starfað í ýmsum nefndum og ráðum hjá Samorku í gegnum tíðina og þekki því vel til samtakanna, þjónustu þeirra við aðildarfyrirtækin og hlutverks þeirra sem málsvara orku- og veitufyrirtækja.