WOW air hefur undirritað samning um að taka í notkun tvær nýjar Airbus A320neo flugvélar, árgerð 2018, í október á næsta ári, en um er að ræða þurrleigusamning við Avolon.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá WOW air. Þar kemur fram að með samningnum hefur félagið tryggt sér alls níu „neo“ Airbus flugvélar, en þær eru nýjustu flugvélarnar frá Airbus og fremstar í sinni röð. Vélarnar nýta nýja tegund hreyfla sem minnkar eldsneytisnotkun um 14% miðað við núverandi tækni. Fyrsta vélin af þessari tegund, TF NEO, var tekin í notkun nú í vor en WOW air var fyrsta flugfélagið í Evrópu til að fá slíka vél afhenta. Samhliða þessu mun WOW air skila tveimur Airbus A320ceo vélum árgerð 2010.
Í lok árs 2018 verða flugvélar WOW air orðnar 24 talsins, þar með talið fjórar nýjar Airbus A330-900neo breiðþotur sem eru stærri og langdrægari en aðrar vélar á Íslandi og verða þær notaðar við áframhaldandi stækkun félagsins.
„Það er ánægjulegt að geta haldið áfram að bjóða upp á langyngsta flotann á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Ekki aðeins eru nýju vélarnar langdrægari og umhverfisvænni heldur eru þær einnig hagkvæmari í rekstri sem gerir okkur kleift að bjóða áfram upp á besta verðið,“ er haft eftir Skúla Mogensen forstjóra WOW air.