Trumpchi íhugar nafnbreytingu

Wikipedia/El monty

Kínverski bílasmiðurinn Trumpchi íhugar að breyta um nafn til þess að höfða betur til bandarískra neytenda en fyrirtækið ætlar að herja á Bandaríkjamarkað árið 2019. 

Það er aðeins tilviljun að nafn bílasmiðsins líkist nafni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og á það rætur að rekja aftur til ársins 2010, löngu áður en Trump fór í framboð, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC

Ríkisfyrirtækið GAC Group framleiðir Trumpchi en yfirhönnuður þess sagði fyrr á árinu að fólk hlægi að nafninu og tæki myndir af því til að birta á samfélagsmiðlum. „Þegar við lásum umsagnir fólks áttuðum við okkur á því að þetta væri kannski ekki besta auglýsingin fyrir vörumerkið.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK