WOW air flutti 224 þúsund farþega til og frá landinu í nóvember eða um 30% fleiri farþega en í nóvember árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 88% en var 87% í nóvember á síðasta ári.
Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 2.6 milljónir farþega sem er 73% aukning á sama tímabili frá árinu áður að því er kemur fram í tilkynningu frá WOW.
WOW air flýgur nú til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku.