Stjörnuspá þri. 14. maí. 2024

Stjörnuspá
þri. 14. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.

20. apríl - 20. maí

Einhver í vinnunni hefur góða hugmynd varðandi betrumbætur. Hafðu í huga að margar hendur vinna létt verk.

21. maí - 20. júní

Þú gætir fengið tækifæri til að nýta auð einhvers þannig að það verði öllum í hag. Láttu þetta tækifæri ekki þér úr greipum ganga.

21. júní - 22. júlí

Þú þarft að laga ýmislegt í starfsháttum þínum og umfram allt þarftu að muna að æfingin skapar meistarann. Farðu eftir eigin hyggjuviti.

23. júlí - 22. ágúst

Það er mikil togstreita innra með þér svo að þú átt erfitt með að einbeita þér. Gefðu þér góðan tíma og leyfðu þínum innri manni að ráða ferðinni.

23. ágúst - 22. september

Það er góður eiginleiki að geta snúið hinum margvíslegustu aðstæðum sér í hag. Skilningsríkt fólk biðst til að hjálpa þér og það kemur þér á óvart.

Vog
23. september - 22. október

Láttu það ekki hafa áhrif á þig, þótt fólk í kring um þig sé með uppsteyt og læti. Ekki leggja út í eitthvað þras, það er einfaldlega ekki þess virði.

23. október - 21. nóvember

Það getur verið gaman að fara ótroðnar slóðir en til þess þarf bæði kjark og þrautseigju. Vanræktu hvorki vini þína né vandamenn.

22. nóvember - 21. desember

Allir hlutir þurfa sinn undirbúning því flas er ekki til fagnaðar. Ekki láta neinn segja þér hvað þér á að finnast um sjálfan þig, þú veist manna best hver þú ert.

22. desember - 19. janúar

Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt þér finnist aðrir afskiptalausir um þína hagi. Misskilningur getur margan hlutinn skemmt.

20. janúar - 18. febrúar

Eitthvað sem var ófrágengið eða óútskýrt í síðasta mánuði er nú alveg klippt og skorið. Þú ert skýjum ofar því draumar þínir eru orðnir að veruleika.

19. febrúar - 20. mars

Segðu ekkert nema að vandlega athuguðu máli því annars gætirðu sært fólk sem þér þykir vænt um. Eitthvað óvænt og örvandi mun gera daginn ánægjulegan.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og