Pútín leggur óvæntan ráðherrakapal

Sergei Shoígú, fráfarandi varnarmálaráðherra, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti.
Sergei Shoígú, fráfarandi varnarmálaráðherra, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti. AFP

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur vikið varnarmálaráðherra landsins til 12 ára úr embætti og tilnefnt efnahagsráðgjafa sinn, sem hefur engan bakgrunn í hernaði, til að taka við embættinu.

Pútín hefur tilnefnt hagfræðinginn Andrej Belúsov til þess að taka við af Sergei Shoígú, fráfarandi varnarmálaráðherra.

Shoígú var skipaður varnarmálaráðherra Rússlands árið 2012. Ráðherrakapallinn kemur á sama tíma og rússneskar hersveitir sækja fram á vígvellinum í fyrsta sinn í marga mánuði. 

Pútín vill að Andrej Belúsov taki við sem varnarmálaráðherra.
Pútín vill að Andrej Belúsov taki við sem varnarmálaráðherra. AFP

Áhrifamikill efnahagsráðgjafi

Pútín birti jafnframt tilskipanir um að Shoígú yrði útnefndur sem nýr ritari öryggisráðs Rússlands í stað Nikolaj Patrúsjév, bandamanns Pútíns til margra ára.

Shoígú mun starfa áfram í þessum geira [varnarmálum], sem hann þekkir vel,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir Dmitrí Peskov, talsmanni Kremlar.

Pútín þarf samkvæmt stjórnarskrá að tilnefna nýja ráðherra, eða endurskipa þá sem þegar sitja, eftir sigur sinn í kosningum í mars. Þingið þarf síðan að samþykkja tilnefningarnar en til stendur að gera það á þriðjudag.

Þrátt fyrir ýmis áföll í innrásinni í Úkraínu hefur Pútín staðið með Shoígú fram að þessu, jafnvel í uppreisn Wagner-málaliða í fyrra, þar sem afsagnar Shoígú var krafist.  

Belúsov, hefur engan hernaðarlegan bakgrunn en hefur þó verið einn áhrifamesti efnahagsráðgjafi Pútíns undanfarinn áratug.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka