Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur friðlýst Fjaðrárgljúfur.
Mörk hins friðlýsta svæðis ná yfir austurhluta gljúfursins og afmarkað svæði ofan gljúfranna austan megin. Það svæði er í eigu Hverabergs ehf.
Fram kemur í tilkynningu að friðlýsingin sé unnin í góðu samstarfi við Hveraberg og sveitarfélagið Skaftárhrepp.
Vinna við friðlýsinguna hófst í framhaldi af samningi sem Guðlaugur Þór og Hveraberg skrifuðu undir í janúar síðastliðnum og kveður á um samstarf um verndun Fjaðrárgljúfurs og uppbyggingu innviða á svæðinu.
„Fjaðrárgljúfur er gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og allt sem bendir til þess að ásókn ferðamanna á svæðið muni aukast á komandi misserum. Það er því mjög ánægjulegt að geta í samstarfi við landeigendur og Skaftárhrepp friðlýst svæðið og skapað því þá umgjörð sem nauðsynleg er til verndar náttúrunni á svæðinu og til móttöku ferðamanna,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.
Fjaðrárgljúfur er um 1,5 km á lengd og mesta dýpt þess er um 100 metrar.