Táningurinn skoraði fyrir Barcelona

Lamine Yamal og Jon Aramburu eigast við í kvöld.
Lamine Yamal og Jon Aramburu eigast við í kvöld. AFP/Lluis Gene

Barcelona hafði betur gegn Real Sociedad á heimavelli í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld.

Hinn 16 ára gamli Lamine Yamal kom Barcelona yfir á 40. mínútu og brasilíski landsliðsmaðurinn Raphinha gulltryggði sigurinn með marki úr víti í uppbótartíma.

Barcelona er í öðru sæti deildarinnar með 76 stig, 14 stigum á eftir Real Madrid sem hefur þegar tryggt sér sigur í deildinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert