Ráðinn aðstoðarþjálfari HK

Vilhelm Gauti Bergsveinsson.
Vilhelm Gauti Bergsveinsson. Ljósmynd/HK

Vilhelm Gauti Bergsveinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs HK í handknattleik.

Vilhelm Gauti verður Halldóri Jóhanni Sigfússyni, sem tekur við sem þjálfari HK í sumar, til aðstoðar auk þess að þjálfa ungmennalið HK.

Hann lék sjálfur lengi vel með HK og var fyrirliði þegar liðið varð bikarmeistari árið 2003 og Íslandsmeistari 2012, auk þess að hafa þjálfað bæði karla- og kvennalið HK ásamt yngri flokkum hjá félaginu.

„Stjórn HK er gífurlega ánægð með að fá jafn öflugan mann og Vilhelm inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla sem spilar í Olís-deildinni aftur á næsta tímabili. 

Vilhelm kemur til með að styrkja okkur í þeirri vegferð sem við erum í að koma HK í fremstu röð í handboltanum,“ sagði í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka