mán. 6. maí 2024 06:00
Kristel Ben Jónsdóttir er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpinu Sterk saman.
„Ég man ekkert en var öll marin og illt allstaðar“

Kristel Ben Jónsdóttir er 39 ára móðir og eiginkona frá Stöðvarfirði. Hún er hundraðasti gestur Tinnu Barkardóttur sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman.

Kristel ólst upp við alkóhólisma en bæði faðir hennar og amma og afi, föðurmegin voru mikið drykkjufólk.

„Pabbi fór að drekka með ömmu og afa þegar við fluttum aftur austur. Hann var samt alltaf góður, aldrei vesen eða leiðindi. Hann sofnaði kannski í sófanum og við grínuðumst með að hann væri að lesa biblíuna inni í augnlokunum,“ segir Kristel og játar að hún hafi þróað með sér meðvirkni eins og börn alkahólista gera. 

„Ég faldi drykkjuna fyrir mömmu til dæmis ef hún fór eitthvað, þá sagði ég að hann væri í lagi þó svo hann væri að drekka og svona,“ segir hún. 

Misnotuð fimm ára gömul

Þegar Kristel var fimm ára varð hún fyrir misnotkun af hálfu nákomins ættingja. Hún lokaði á þessa lífsreynslu og hún kom ekki upp á yfirborðið fyrr en Kristel varð ólétt 19 ára gömul. 

„Ég sýndi allskyns hegðun, var frökk sem barn, til í allt og mikið að flýta mér að verða fullorðin en hafði engum sagt frá og blokkerað það sem hafði gerst,“ segir hún. 

Á unglingsárunum fiktaði hún við vímuefni og drakk en 19 ára varð hún móðir. 

„Ég byrjaði að fá svo sterkar minningar frá barnæskunni þegar ég var ólétt, fyrst hélt ég að ég væri að verða geðveik en talaði við sálfræðing og þá er þetta víst algengt þegar maður hefur lent í svona, að minningarnar komi aftur þegar maður er sjálfur að verða mamma. Ég sagði systur minni þetta og hún gat ekki setið með þetta svo hún sagði foreldrum okkar. Þá varð bara „intervention“ og málin rædd.“

Þegar dóttir hennar var orðin nógu gömul fór hún að stunda skemmtanalífið, eins og gengur. Hún djammaði þegar tækifæri gafst og nýtti tækifærin vel. 

Byrlað á balli

Eitt skiptið var ball fyrir austan sem flestir í bænum mættu á. 

„Það var fyrirpartý hjá mér, ég bjó bakvið Valaskjálf. Ég var ekki orðin drukkin þegar við mættum. Það kom útlendingur og bauð mér í glas, sem ég þáði, ég sneri mér undan og talaði við frænda minn og fékk svo glasið og drakk. Eftir það man ég lítið sem ekkert.“

Kristel vaknaði í rúminu sínu, nakin og með mikla áverka. 

„Ég fékk að heyra að fólk hafi séð einhvern mann drösla mér heim. Vinur minn kom að mér inni á baðherbergi þar sem ég lá nakin og hélt að ég hafi drepist áfengisdauða. Hann fékk vinkonu okkar til að koma mér inn í rúm, þar sem ég vaknaði.“

Kristel leitaði til lögreglu og fór í blóðprufu þar sem í ljós kom að henni hafði verið byrlað lyfi sem notað er til að deyfa hross.

„Ég man ekkert en var öll marin og illt allstaðar og vont að pissa. Ég veit ekkert hver gerði mér þetta,“ segir hún og hélt þessari lífsreynslu leyndri. Eða þangað til hún fór til Reykjavíkur að hitta vin sinn sem hún hafði kynnst þegar hún var 18 ára. Hann fór með henni í Stígamót og var mikill stuðningur.

„Ég treysti honum fyrir þessu og hann hjálpaði mér mikið. Ég og þessi vinur minn, eignuðumst svo barn saman,“ segir hún.

Missti barnsföður sinn

Meðgangan var erfið, fæðingin erfið og barnsfaðir Kristelar í neyslu en hann lést þegar sonur þeirra var aðeins þriggja ára.

„Ég syrgi mikið að sonur minn hafi ekki fengið að kynnast pabba sínum, hann átti góða spretti edrú en á endanum syrgi ég það sem hefði geta orðið.“ 

Kristel var ung, einstæð móðir og upplifði að hafa ekki efni á að eiga börnin sín, stundum var ekki til matur í ísskápnum og í eitt skipti átti að taka rafmagnið og hitann af því hún gat ekki borgað reikninginn.

„Ég vann og gerði mitt allra besta en náði aldrei endum saman. Ég fékk oft aðstoð frá mömmu og pabba en af því að ég var að vinna þá fékk ég ekki aðstoð frá kerfinu,“ segir hún.

Í dag er hún gift og búin að vera í sambandi í tæp tíu ár með manni sem hún setti skýr mörk í upphafi.

„Hann var í neyslu þegar hann heyrði í mér fyrst svo ég sagði honum að tala við mig eftir meðferð. Hann gerði það og við erum búin að vera saman síðan.“

Þau eignuðust saman son sem greindur hefur verið með einhverfurófsröskun og er það verkefni út af fyrir sig, eins og hún orðar það.

„Hann talaði sitt tungumál til að byrja með en er farinn að tala meira núna. Hann er dásamlegt barn.“

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

til baka