Lögreglan í Manchester handtók á dögunum hina 93 ára gömlu Josie Birds. Það er ekki aðeins í frásögur færandi vegna hás aldurs þeirrar handteknu, heldur einnig vegna þess að hún óskaði sjálf eftir handtökunni eftir að hafa „hagað sér vel allt sitt líf“, að því er segir í frétt Guardian af málinu.
Það var barnabarn Birds sem greindi upphaflega frá góðverki lögreglunnar á Twitter, en þar þakkar Pam Smith lögreglunni fyrir að „handtaka“ ömmu hennar. Hún segir heilsu ömmu hennar fara hrakandi og að hún hafi viljað láta handtaka sig fyrir eitthvað áður en það yrði um seinan.
A big thank you to @gmpolice for "arresting" my Gran Josie today. She is 93 years old and her health is failing, and she wanted to be arrested for something before it's too late. She has a heart of gold and thoroughly enjoyed it today. Thank you for granting her wishes. pic.twitter.com/hi1qkJESwv
— Pam Smith (@sterlingsop) 22 June 2019
Tístið hefur vakið lukku hátt í 2.000 notenda og vakti athygli lögreglunnar sem svaraði um hæl og sagðist ánægð með að lögregluþjónarnir hafi getað hjálpað.