Eina úrlausnin að leita til dómstóla

Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðsinssonar, eins hinna sýknuðu, segir að …
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðsinssonar, eins hinna sýknuðu, segir að engin önnur úrlausn sé í málinu en að leita til dómstóla eftir að ríkið sleit samningaviðræðum í sáttaumleitunum milli stjórnvalda og hinna nýsýknuðu í Guðmundar- og Geirfinnsmálum og aðstandenda þeirra. mbl.is/Valli

Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, eins hinna sýknuðu í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, segir íslenska ríkið hafa slitið samningaviðræðum í sáttaumleitunum milli stjórnvalda og hinna nýsýknuðu og aðstandenda þeirra. Segir hann að engin önnur úrlausn sé í málinu en að leita til dómstóla.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að sáttaumleitanir væru að sigla í strand eftir að Guðjón hafnaði bótatilboði sáttanefndar stjórnvalda. Ragnar segist ekki vera í stöðu til að tjá sig um mál annarra sem koma að málinu. „En ég veit ekki hvort ríkið var búið á koma á samkomulagi við einhverja þannig að á enda væri komið.“

Líkt og fram kom í Silfr­inu fyrr í mánuðinum fór Guðjón fram á að fá einn millj­arð króna í bæt­ur en greint hefur verið frá því að sáttanefndinni hafi verið sett 600 milljóna króna þak af ríkinu.

„Alvarlegustu dómsmorð seinni tíma á Íslandi“

Ragnar segir að ríkið hafi frá upphafi gefið það í skyn að ef farið yrði fram á bætur sem ríkið teldi of háar yrði dómstólaleiðin alltaf niðurstaðan. Það hafi nú fengist staðfest. „Það er sennilega engin úrlausn önnur úr því að ríkið hefur ekki áhuga á að ljúka málinu með samkomulagi,“ segir Ragnar.

Hann bendir á að málið geti ekki verið léttbært fyrir ríkið. „Við verðum að hafa það í huga að verið er að fjalla um alvarlegustu dómsmorð seinni tíma á Íslandi,“ segir Ragnar.

Að óbreyttu verður það í höndum dómstóla að kveða á um bætur í málinu. „Þetta er ekki flókið mál, það þarf ekki að sanna eitt né annað, það þarf að ákveða fjárhæð. Í máli Guðjóns er ríkinu skylt að lögum að bæta honum tjón sem hann varð fyrir og það er svokölluð hlutlæg bótaskylda ríkisins,“ segir Ragnar.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert