Óskar eftir fundi með lögreglustjóra

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og …
Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar. mbl.is/Hari

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar, hefur óskað komu Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjóra Reykjavíkur, á fund ráðsins á fimmtudag. 

Óskin kemur í kjölfar kvartana yfir framgöngu lögreglu á Secret Solstice og Hinsegin dögum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Pírötum. El­ín­borg Harpa Önund­ar­dótt­ir, sem var hand­tek­in fyr­ir meint mót­mæli í miðri Gleðigöngu Hinseg­in daga um helgina seg­ir út­skýr­ing­ar lög­regl­unn­ar á hand­tök­unni „al­gjört bull.“

Á fundinum mun lögreglustjóri kynna umgjörð lögreglu og verklag við borgarhátíðir sem og svara spurningum ráðsins vegna starfa lögreglu.

Fram kemur í tilkynningu Pírata að í kjölfar Secret Solstice hátíðarinnar er nokkur fjöldi mála í bótakröfuferli sökum kvartana um að lögregla hafi leitað á gestum án dómsúrskurðar.

„Virðing fyrir borgararéttindum er hornsteinn lýðræðisins. Lögreglan hefur einkarétt á beitingu valds gagnvart þegnum okkar lýðræðissamfélags og gríðarlega mikilvægt er að vel sé farið með það vald til að halda trausti borgarbúa á löggæslukerfinu og réttarríkinu sem slíku,” segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar.

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar fer með eftirlit með því að mannréttindi og borgaraleg og lýðræðisleg réttindi borgarbúa séu virt þvert á stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og á viðburðum með aðkomu Reykjavíkurborgar. „Því var ákveðið að fylgja þessum málum eftir með því að fá kynningu lögreglu og koma ábendingum á framfæri,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert