Einbýlishús í ljósum logum

Eldur kviknaði í einbýlishúsi við Kaldasel á sjöunda tímanum í …
Eldur kviknaði í einbýlishúsi við Kaldasel á sjöunda tímanum í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins berst nú við eld í einbýlishúsi í Kaldaseli í Breiðholtinu. Óttast er að um altjón sé að ræða. Einn var í húsinu og náði hann að komast út úr brennandi húsinu.

Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu var tilkynnt um eldsvoðann um 6:40 og er slökkvilið enn að störfum.

Ekki er talið að fleiri hafi verið inni í húsinu þegar kviknaði í.

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á sjöunda …
Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á sjöunda tímanum vegna elds í einbýlishúsi við Kaldasel. mbl.is/Árni Sæberg

Vegna eldsvoðans eru íbúar í nágrenni Kaldasels hvattir til að loka gluggum og hækka á ofnum vegna reyks sem leggur frá húsinu. Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu að sögn lögreglunnar.

Vegna slökkvistarfs er búið að loka Jafnaseli svo leið strætisvagnar á leið 3 og 4 geta ekki ekið Jaðarselið. Þeir aka Seljabraut, Seljaskóga og Hjallasel til að komast inn á leið að því er segir á vef Strætó.

Uppfært klukkan 8:15

Slökkvistarf er enn í gangi og ekki ljóst hvenær því lýkur að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Vegna slökkvistarfs er búið að loka Jafnaseli svo leið stætisvagnar …
Vegna slökkvistarfs er búið að loka Jafnaseli svo leið stætisvagnar á leið 3 og 4 geta ekki ekið Jaðarselið. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert