Bar hring Díönu heitinnar

Hertogaynjan af Sussex bar hring Díönu prinsessu heitinnar við kjólinn …
Hertogaynjan af Sussex bar hring Díönu prinsessu heitinnar við kjólinn sem hún klæddist í veislunni. mbl.is/AFP

Meghan, hertogaynjan af Sussex, fór úr brúðarkjólnum frá Givenchy yfir í kjól frá breska hönnuðinum Stella McCartney. Hún bar hring Díönu prinsessu heitinnar, móður Harry, í veislunni sem haldin var eftir athöfnina. 

Fallegir handleggir hertogaynjunnar fengu að njóta sín í kjólnum sem náði upp í háls en bakið var opið. Kjólinn er aðsniðinn með látlausum sniðsaumum og úr fallegu hvítu efni. 

Það vakti athygli að hertogaynjan skartaði hring Díönu prinsessu heitinnar. Um er að ræða hring með Aquamarine steini og demöntum í baugnum sjálfum sem er úr 24 karata gulli. Aqueamarine steinninn er með emerald sniði. Díana prinsessa fékk þennan hring 1997 en hann var hannaður af Asprey. 

Það var einlæg ósk Díönu að tengdadætur hennar myndu bera skartgripina eftir hennar dag. Katrín hertogaynja af Cambridge hefur notið góðs af skartgripasafni tengdamóður sinnar heitinnar og nú bætist Meghan hertogaynja af Sussex í hópinn. 

mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál