Trúa að hægt sé að leyfa meiri veiði

Venus NS og Víkingur AK eru farin aftur til kolmunnaveiða.
Venus NS og Víkingur AK eru farin aftur til kolmunnaveiða. mbl.is/Kristján Maack

„Það er ljóst að niðurstaðan úr mælingum Hafrannsóknastofnunnar er okkur mikil vonbrigði,“ segir Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs HB Granda.

„Hafrannsóknastofnun fór tvisvar yfir áætlað útbreiðslusvæði loðnunnar nú í vetur og mældi þar loðnu við kjöraðstæður. Ekki reyndist marktækur munur á niðurstöðum þessa þriggja mælinga og stofninn var metinn 849.000 tonn. Það vekur furðu okkar að eftir þrjár yfirferðir með sambærilegri niðurstöðu skuli óvissa mælinga vera svo há að ekki sé tilefni til að úthluta meira en 285.000 tonnum,“ segir Garðar um tillögu Hafrannsóknastofnunar, sem fyrst var greint frá á 200 mílum.

Í samræmi við gildandi aflareglu er lagður til 285 þúsund tonna heildarkvóti á vertíðinni eða 14 þúsund tonnum minna en í fyrra. Viðbótin nú frá byrjunarkvótanum, sem gefinn var út í haust, er því 77 þúsund tonn. Þar af koma um 55 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa.

Haft er eftir Garðari á vef HB Granda að útgerðarmenn standi með vísindamönnum í þeirri vegferð að ná sem best utan um stöðu loðnustofnsins og tryggja að nýting hans sé með ábyrgum hætti.

„Það verður hins vegar að eiga sér stað málefnalegt samtal um hvort núverandi óbreytt aflaregla sé best til þess fallin að tryggja hámarksafrakstur með ábyrgum hætti. Ég geri ráð fyrir því að þetta samtal muni eiga sér stað á komandi mánuðum,“ segir hann og bætir við:

„Verkefnið núna er að fara yfir það með Hafrannsóknastofnun hvaða kostir eru í stöðunni. Trú okkar er að tilefni sé til að leyfa meiri loðnuveiði, ákvörðun um slíkt verður þó eingöngu tekin ef niðurstaða frekari mælinga gefur tilefni til þess.“

Bæði uppsjávarveiðiskip félagsins,Venus NS og Víkingur AK, hafa verið að loðnuveiðum með góðum árangri í janúar en þau hættu bæði þeim veiðum í síðustu viku vegna óvissu um framhaldið.

„Bæði skipin eru nú farin til kolmunnaveiða,“ segir Garðar. „Á þessari stundu liggur ekki fyrir ákvörðun um hvernig framhaldi loðnuveiða verður háttað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »