Ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson AK kom úr sinni síðustu veiðiferð fyrir HB Granda aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku. Var aflinn um 90 tonn af karfa, þorski og ufsa, en með veiðiferðinni lauk farsælum ferli skipsins undir merkjum HB Granda.
Greint er frá þessu á vef útgerðarinnar en áður hefur verið fjallað um nýsmíðina Akurey, sem leysir Sturlaug af hólmi.
Sturlaugur H. Böðvarsson AK var smíðaður hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts árið 1981 fyrir Grundfirðinga og hét þá Sigurfari SH. Togarinn, sem er 58,30 metra langur og mælist 431 brúttórúmlest, kostaði á sínum tíma 37,3 milljónir króna að teknu tilliti til fjármagnskostnaðar á smíðatímanum, að því er fram kemur á vef HB Granda.
Hann komst síðar í eigu Haraldar Böðvarssonar hf. og fékk þá Sturlaugsnafnið. Eftir sameiningu Granda og Haraldar Böðvarssonar í HB Granda hefur skipið verið gert út undir merkjum félagsins.
Skipstjóri í síðustu veiðiferð Sturlaugs H. Böðvarssonar fyrir HB Granda var Jón Frímann Eiríksson en hann er sonur Eiríks Jónssonar, sem hefur verið skipstjóri á Sturlaugi frá árinu 2009. Hann er nú tekinn við Akureynni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |