„Hættan er sú að fá of mikið“

Beitir NK að veiðum. Mynd úr safni.
Beitir NK að veiðum. Mynd úr safni. mbl.is/Haraldur Hjálmarsson

„Við erum komnir með rúmlega 3.000 tonn og vorum að leggja af stað heim til löndunar. Við verðum komnir til Neskaupstaðar seinni partinn á sunnudag,“ segir Tómas Kárason, skipstjóri á fiskiskipinu Beiti NK.

Áhöfn skipsins hélt til kolmunnaveiða frá Neskaupstað 13. febrúar og kom við í Færeyjum áður en hann hóf loks veiðar á miðunum suðvestur af Írlandi á sunnudag. Veiðarnar hafa gengið vel að sögn Tómasar en þær hafa farið fram um 200 sjómílur suðvestur af Írlandi, um 100 sjómílum vestan við hafsvæði sem á ensku nefnist „Porcupine“, eða Broddgölturinn.

„Frá Norðfirði á þessi mið eru um 900 sjómílur eða rúmlega þriggja sólarhringa sigling. Hér er svakalega mikið að sjá, lóðningarnar eru alveg rosalegar. Þetta er aðgæsluveiði, hættan er sú að fá of mikið. Stundum vorum við að hífa 300-400 tonn á tveggja tíma fresti,“ var haft eftir Tómasi í gærdag á vef Síldarvinnslunnar.

„Beitir hefur verið eina íslenska skipið á miðunum að undanförnu en Guðrún Þorkelsdóttir SU var komin á undan okkur og lagði af stað í land með 1.500 tonn í fyrrinótt. Hér er talsverður fjöldi af skipum annarra þjóða; Rússar, Norðmenn og Færeyingar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,65 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,72 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,11 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,65 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,72 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,11 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »