Aflinn hefði aukist um 3.941 tonn

Bjarni spurði hvort ráðherra teldi að aukin hlutdeild strandveiðibáta í …
Bjarni spurði hvort ráðherra teldi að aukin hlutdeild strandveiðibáta í aflaaukningu í þorski myndi styrkja dreifðar byggðir, og hvort hann myndi beita sér fyrir því. mbl.is/Sigurður Ægisson

Heildarafli strandveiða á síðasta ári hefði orðið 13.701 tonn og aukist um 3.941 tonn, eða um 40,4%, ef veiðar hefðu verið heimilaðar fjóra daga í viku frá 2. maí til og með 30. ágúst.

Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Bjarna Jónssonar, þingmanns Vinstri grænna, en svarið birtist á vef Alþingis á föstudag.

Úthlutunin tvöfaldast frá 2009

Einnig spurði Bjarni hvort ráðherra teldi að aukin hlutdeild strandveiðibáta í aflaaukningu í þorski myndi styrkja dreifðar byggðir, og hvort hann myndi beita sér fyrir því.

Benti ráðherrann á að úthlutun þorsks til strandveiða hefði farið úr 3.955 tonnum í 10.200 árið 2018.

„Í skýrslu Háskólans á Akureyri um þróun strandveiða á tímabilinu 2009–2017 og framgang veiðanna árið 2017 kemur fram að staða veiðanna að loknum strandveiðum árið 2017 sé óljósari en oft áður,“ segir svo í svari ráðherrans, en vísað er til skýrslu sem 200 mílur fjölluðu um í síðustu viku.

Vega þurfi og meta fyrirkomulagið

„Þannig hafi aldrei verið sett jafnmikið af aflaheimildum inn í kerfið en þrátt fyrir það hefðu aldrei jafnfáir bátar sótt strandveiðarnar frá því að þær hófust árið 2009. Í skýrslunni er vísað til þess að vegna lélegs afurðaverðs á fiskmörkuðum hafi aukin aflabrögð ekki skilað meiri verðmætum. Þannig hafi heildaraflaverðmæti á bát að meðaltali verið lægri en árið 2016 þrátt fyrir að hver bátur hafi aflað um 20–30% meira. Strandveiðikerfið hafi því ekki verið sú brú fyrir nýliða inn í aflamarkskerfið sem vonast var eftir,“ segir enn fremur í svarinu.

„Þá má geta þess að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að vega þurfi og meta fyrirkomulag þeirra aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir, þ.m.t. strandveiða, með það að markmiði að tryggja betur byggðafestu og nýliðun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,87 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 188 kg
Ýsa 130 kg
Steinbítur 112 kg
Keila 15 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 1 kg
Samtals 451 kg
24.4.24 Dagur ÞH 110 Línutrekt
Þorskur 1.763 kg
Ýsa 271 kg
Steinbítur 78 kg
Keila 28 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 2.145 kg
24.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 1.138 kg
Þorskur 89 kg
Samtals 1.227 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,87 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 188 kg
Ýsa 130 kg
Steinbítur 112 kg
Keila 15 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 1 kg
Samtals 451 kg
24.4.24 Dagur ÞH 110 Línutrekt
Þorskur 1.763 kg
Ýsa 271 kg
Steinbítur 78 kg
Keila 28 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 2.145 kg
24.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 1.138 kg
Þorskur 89 kg
Samtals 1.227 kg

Skoða allar landanir »