Nýta íslenska þekkingu við eftirlit

Lögsaga Ástralíu er víðfeðm.
Lögsaga Ástralíu er víðfeðm.

Fiskveiðieftirlitskerfi frá íslenska hátæknifyrirtækinu Trackwell hefur orðið fyrir valinu í opnu útboði ástralskra fiskveiðiyfirvalda um kerfi til eftirlits í þessari þriðju stærstu lögsögu heims. Með tækni fyrirtækisins verður hægt að fylgjast í rauntíma með ferðum þeirra 7.000 skipa sem tilheyra áströlsku lögsögunni, sem spannar 8,2 milljónir ferkílómetra.

Útboðið var á vegum Fiskveiðieftirlitsstofnunar Ástralíu og mun Trackwell enn fremur sinna þjónustu og uppfærslum á kerfinu fyrir áströlsk stjórnvöld. Samningurinn við áströlsk stjórnvöld er einn sá stærsti sem Trackwell hefur gert en kerfi þess eru nú þegar notuð víða um heim og þykja í allra fremstu röð á heimsvísu, að því er fram kemur í tilkynningu. 

„Þessi samningur markar viss tímamót hjá Trackwell enda einn okkar stærsti samningur til þessa. Í fyrsta lagi gefur hann okkur möguleikann á að vinna náið með áströlskum yfirvöldum að vöktun skipaumferðar innan þeirra lögsögu og atferli þeirra skipa sem sigla um Kyrrahafið, sem og stóra hluta Indlandshafs og Suður-Íshafs. Í öðru lagi staðfestir samningurinn stöðu Trackwell sem leiðandi þjónustu- og söluaðila fiskveiðieftirlitskerfa á heimsvísu,“ segir Kolbeinn Gunnarsson, sviðsstjóri sjávarútvegssviðs Trackwell. 

„Hugbúnaðarlausnir Trackwell voru valdar úr fjölda útboða þar sem fyrirtækið býður upp á heildstæð og samkeppnishæf kerfi. Okkar starfsemi kallar á stöðuga þróun og mæta kerfi Trackwell okkar fjölbreyttu kröfum,“ segir Jeremy Thuell, framkvæmdastjóri hjá Fiskveiðieftirlitsstofnun Ástralíu. 

Eftirlit víða um höf

Trackwell var stofnað árið 1996 og hefur verið leiðandi í heiminum við hönnun hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútveg, sem bæði hafa aukið öryggi sjófarenda og bætt eftirlit við fiskveiðistjórn. Fyrirtækið hefur lengi unnið að þróun hugbúnaðarlausna í nánu samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands, Neyðarlínuna og Sjávarútvegsráðuneytið, auk fjölda erlendra viðskiptavina.

Fiskveiðieftirlitsstofnun Ástralíu bætist því í hóp viðskiptavina á borð við Landhelgisgæslu Íslands, Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndina, Fiskveiðiráð Kyrrahafseyja og Fiskveiðinefnd Vestur- og Mið-Kyrrahafs. 

Meðfylgjandi er kort af lögsögu Ástralíu.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,58 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,58 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »