Íbúar skildir eftir í mikilli óvissu

Bæjarstjórnin skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að …
Bæjarstjórnin skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að skapa umgjörð um fiskeldi á Íslandi sem gerir því kleift að vaxa til framtíðar. mbl.is/Sigurður Bogi

Vestfirðingar þekkja það allt of vel að framfaramál í fjórðungnum séu stöðvuð af óljósum tæknilegum ástæðum. Óásættanlegt er að rekstrargrundvelli fyrirtækja þar, sem og annars staðar á Íslandi, sé kippt undan þeim eins og staðan er nú í íslensku fiskeldi.

Þetta segir í bókun bæjarstjórnar Bolungarvíkurkaupstaðar, sem samþykkt var á fundi hennar í síðustu viku.

„Það er ólíðandi að íbúar í Vesturbyggð og Tálknafirði séu skildir eftir í mikilli óvissu og nauðsynlegt að þetta fólk fái afdráttarlausan stuðning stjórnvalda. Nú er málið komið á þann stað að aðgerða er þörf. Það er krafa okkar að tíminn sé vel nýttur til að horfa til framtíðar og til að skapa umgjörð sem gerir fiskeldisfyrirtækjum kleift að vaxa og byggjast upp,“ segir í bókuninni.

„Bæjarstjórn styður fyllilega að gætt sé varúðar við uppbyggingu fiskeldis. Ekki hefur verið farið fram á annað en að uppbyggingin verði í sátt við náttúru og að uppfylltum skilyrðum.“

Bæjarstjórnin skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að skapa umgjörð um fiskeldi á Íslandi sem gerir því kleift að vaxa til framtíðar, „án sífelldra áfalla, vandamála og uppákoma eins og samfélagið hefur orðið vitni að undanfarna daga og vikur. Fiskeldi er umhverfisvæn atvinnugrein sem hefur alla burði til að vera einn af hornsteinum í vestfirsku og íslensku atvinnulífi til framtíðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 361,49 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 361,49 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »