Stjórnin harmar alvarlegar ásakanir

Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, tilkynnti í gær að hann …
Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, tilkynnti í gær að hann myndi láta af störfum að loknu þessu kjörtímabili. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Stjórn Sjómannafélags Íslands harmar alvarlegar ásakanir sem hún segir hafa komið í garð félagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin hefur sent fjölmiðlum en þar segir hún Heiðveigu Maríu Einarsdóttur, sem boðað hefur framboð í komandi formannskosningum félagsins, hafa farið fram með órökstuddum staðhæfingum um að félagið hafi brotið gegn félagsmönnum.

Heiðveig María Einarsdóttir hefur boðað framboð til formanns í vetur.
Heiðveig María Einarsdóttir hefur boðað framboð til formanns í vetur. mbl.is/Eggert

Legið undir ámæli

Er vísað til viðtals við vefmiðilinn Vísi á fimmtudag og viðtals á Bylgjunni á föstudag, og rifjað upp að á aðalfundi félagsins 28. desember á síðasta ári hafi verið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga um að kjörgengir væru hverju sinni þeir félagar sem greitt hefðu í félagið þrjú ár þar á undan.

„Undanfarna daga hefur Sjómannafélag Íslands legið undir ámæli frá Heiðveigu Maríu Einarsdóttur sjómanni vegna þessara lagabreytinga og hefur hún sakað forystu Sjómannafélagins um að falsa lagabreytingu um kjörgengi til stjórnar Sjómannafélagsins til þess að koma í veg fyrir framboð sitt en Heiðveg María hefur lýst áhuga á því að bjóða sig fram til formanns í félaginu,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.

„Aðspurð í útvarpsviðtalinu viðurkennir Heiðveig það hins vegar að umræddar lagabreytingar hafi verið bornar upp og samþykktar á aðalfundi félagsins. Með öðrum orðum að farið hafi verið að lögum félagsins.“

Stjórn félagsins segir félagið hafa alla tíð unnið af heilindum …
Stjórn félagsins segir félagið hafa alla tíð unnið af heilindum að hagsmunum og kjaramálum sjómanna. mbl.is/Eggert

Vegi að æru félagsins

Stjórn félagsins segist harma hinar alvarlegu ásakanir sem fram hafi komið í garð félagsins.

„Sjómannafélagið hefur alla tíð unnið af heillindum [sic] að hagsmunum og kjaramálum sjómanna. Innan raða þess er starfsfólk með áratugareynslu af málefnum sjómanna. Með ásökunum sínum á hendur starfsmönnum Sjómannafélags Íslands vegur Heiðveig María að æru félagsins og allra þeirra sem koma að stjórn og rekstri félagsins.“

Formaður félagsins, Jónas Garðarsson, tilkynnti í gær að hann hygðist ekki bjóða sig fram að nýju þegar yfirstandandi kjörtímabili hans lýkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »