Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur úthlutað alls 14.305 tonnum í sértækan og almennan byggðakvóta.
Úthlutunin er byggð á lögum um stjórn fiskveiða, en þar er kveðið á um að 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund séu dregin af leyfilegum heildarafla og varið til ýmissa tímabundinna ráðstafana til þess að auka byggðafestu.
Fram kemur í tilkynningu frá stjórnarráðinu að sértækur byggðakvóti Byggðastofnunar aukist um 94 tonn frá fyrra fiskveiðiári, og sé 6.429 tonn á því fiskveiðiári sem nú er hafið. Bent er á að markmið sértæks byggðakvóta sé að stuðla að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma og ná þannig að skapa og viðhalda sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum.
Almennur byggðakvóti á fiskveiðiárinu er sagður nema alls 7.876 tonnum, eða sem nemur 6.168 þorskígildistonnum. Alls er byggðakvóta úthlutað til 27 sveitarfélags og í þeim fengu 45 byggðarlög úthlutun. Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá fjögur byggðarlög þá úthlutun, að því er segir í tilkynningu.
Úthlutun byggðakvótans byggir á talnaupplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2008/2009 til fiskveiðiársins 2017/2018.
Sjá yfirlit yfir úthlutun byggðakvóta
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.544 kg |
Steinbítur | 551 kg |
Þorskur | 240 kg |
Hlýri | 99 kg |
Skarkoli | 96 kg |
Langa | 10 kg |
Keila | 6 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 2.548 kg |
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.222 kg |
Þorskur | 808 kg |
Steinbítur | 36 kg |
Samtals | 2.066 kg |
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 4.588 kg |
Ýsa | 1.782 kg |
Karfi | 164 kg |
Steinbítur | 129 kg |
Ufsi | 27 kg |
Langa | 11 kg |
Keila | 11 kg |
Samtals | 6.712 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.4.24 | 477,85 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.4.24 | 568,87 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.4.24 | 324,35 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.4.24 | 266,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.4.24 | 217,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.4.24 | 257,51 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.4.24 | 163,22 kr/kg |
Litli karfi | 16.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.544 kg |
Steinbítur | 551 kg |
Þorskur | 240 kg |
Hlýri | 99 kg |
Skarkoli | 96 kg |
Langa | 10 kg |
Keila | 6 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 2.548 kg |
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.222 kg |
Þorskur | 808 kg |
Steinbítur | 36 kg |
Samtals | 2.066 kg |
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 4.588 kg |
Ýsa | 1.782 kg |
Karfi | 164 kg |
Steinbítur | 129 kg |
Ufsi | 27 kg |
Langa | 11 kg |
Keila | 11 kg |
Samtals | 6.712 kg |