„Ætlar ríkisstjórnin á ný að gefa út ný veiðileyfi og kvóta til veiða á langreyðum í lögsögu Íslands?“ spurði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á Alþingi í dag og beindi fyrirspurn sinni til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Inga benti á að árið 2018 hafi verið síðasta árið af fimm ára tímabili þar sem kvótar til veiða á langreyðum hefðu verið gefnir út af stjórnvöldum. „Ef halda á áfram veiðunum úr þessum hvalveiðistofni á komandi sumri verður ríkisstjórnin að gefa út ný veiðileyfi og kvóta vart seinna en nú í sumarbyrjun,“ sagði Inga.
Hún vitnaði í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða og sagði að þar væri niðurstaðan meðal annars sú að hvalveiðar skaði ekki íslenskt efnahagslíf.
Katrín sagði að ljóst væri að flokkarnir í ríkisstjórn, VG, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hafi ólíka sýn á hvalveiðar og um þær sé ekki fjallað sérstaklega í stjórnarsáttmála.
Hún sagði að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands hefði verið gagnrýnd og þurfi að fara yfir hana og þær forsendur sem séu fyrir hendi hvað varði stofnstærð stofnanna, efnahagsleg áhrif og hvort talið sé að skýrslan sé fullnægjandi.
„Og af því að þingmaður spyr hvort búið sé að taka þessa ákvörðun get ég sagt þingmanni að sú ákvörðun hefur ekki verið tekin, hún þarf að byggjast á þessum forsendum,“ sagði forsætisráðherra.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |
27.3.24 Júlía SI 62 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.299 kg |
Þorskur | 251 kg |
Rauðmagi | 20 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Samtals | 2.576 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |
27.3.24 Júlía SI 62 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.299 kg |
Þorskur | 251 kg |
Rauðmagi | 20 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Samtals | 2.576 kg |