Tyrkneska skipasmíðastöðin Sanmar Shipyard Istanbul hefur sent kærunefnd útboðsmála erindi og krafist ógildingar á útboði Faxaflóahafna sf. á nýjum dráttarbáti eða álits á bótum. Faxaflóahafnir hafa frest til 8. febrúar til að svara.
Sem kunnugt er samþykkti stjórn Faxaflóahafna að ganga til samninga við hollensku skipasmíðastöðina Damen Shipyards um að smíða bátinn. Smíðinni mun því seinka um þann tíma sem tekur að fá niðurstöðu í þetta kærumál.
Að sögn Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, er forsenda kærunnar sú að Sanmar Shipyard er ósátt við ákvæði útboðsgagna um mat á gæðum, en tilgreint var að verð gilti 50% og gæði 50%. Á útboðstímanum og við opnun komu engar athugasemdir við gögnin, að sögn Gísla. Tilkynning um niðurstöðu útboðsins hafði verið send öllum bjóðendum 2. janúar. Þá tók við ákveðinn frestur samkvæmt lögum sem snýr að því að bjóðandi getur gert kröfu um að stöðva samningsgerð en sá frestur rann út án kæru. Hins vegar er almennur kærufrestur samkvæmt 106. grein laga um opinber útboð 20 dagar og sl. mánudag, 21. janúar, barst síðan kæran.
Niðurstaða ráðgjafa Faxaflóahafna á gæðamati var borin undir alþjóðlega flokkunarfyrirtækið Lloyd's sem staðfesti mat ráðgjafanna. Allir bátar Faxaflóahafna eru skráðir hjá Lloyds, sem tryggir ákveðin gæði og eftirlit, að sögn Gísla.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.9.24 | 472,91 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.9.24 | 496,66 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.9.24 | 284,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.9.24 | 288,17 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.9.24 | 243,50 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.9.24 | 286,20 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.9.24 | 236,50 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 26.9.24 | 252,00 kr/kg |
26.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 3.588 kg |
Þorskur | 2.639 kg |
Ýsa | 19 kg |
Þykkvalúra | 18 kg |
Samtals | 6.264 kg |
26.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 684 kg |
Hlýri | 79 kg |
Karfi | 34 kg |
Ýsa | 30 kg |
Keila | 23 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Langa | 14 kg |
Ufsi | 4 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Samtals | 884 kg |
26.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 3.994 kg |
Keila | 369 kg |
Þorskur | 347 kg |
Karfi | 254 kg |
Langa | 251 kg |
Hlýri | 151 kg |
Ufsi | 94 kg |
Samtals | 5.460 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.9.24 | 472,91 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.9.24 | 496,66 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.9.24 | 284,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.9.24 | 288,17 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.9.24 | 243,50 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.9.24 | 286,20 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.9.24 | 236,50 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 26.9.24 | 252,00 kr/kg |
26.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 3.588 kg |
Þorskur | 2.639 kg |
Ýsa | 19 kg |
Þykkvalúra | 18 kg |
Samtals | 6.264 kg |
26.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 684 kg |
Hlýri | 79 kg |
Karfi | 34 kg |
Ýsa | 30 kg |
Keila | 23 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Langa | 14 kg |
Ufsi | 4 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Samtals | 884 kg |
26.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 3.994 kg |
Keila | 369 kg |
Þorskur | 347 kg |
Karfi | 254 kg |
Langa | 251 kg |
Hlýri | 151 kg |
Ufsi | 94 kg |
Samtals | 5.460 kg |