Klekst út, vex og dafnar við Ísland

Makríl sturtað úr poka niður í lest.
Makríl sturtað úr poka niður í lest. mbl.is/Árni Sæberg

Makríll klekst út, vex og dafnar á íslensku hafsvæði. Sýnt hefur verið fram á þetta í fyrsta skipti í nýrri rannsókn Hafrannsóknastofnunar og Háskóla Íslands.

Greint er frá niðurstöðum rannsóknarinnar á vef stofnunarinnar, en þar segir að þrátt fyrir þessa staðreynd sé vissulega aðeins um lítið brot af heildarhrygningu makríls að ræða.

Á undanförnum árum hafi makríll gengið bæði norðar og vestar en áður. Samfara þeirri þróun hafi útbreiðsla og magn makríls á Íslandsmiðum aukist verulega, sem talið er að tengist hlýnun sjávar og þéttleikaháðum áhrifum samfara stækkun stofnsins.

Nær hámarki í apríl-maí

„Beinar veiðar hófust hér við land árið 2007. Makríllinn byrjar að hrygna í febrúar við strendur Spánar og Portúgals og síðan flyst hrygningin smám saman norður með Evrópu fram á vor með hækkandi hitastigi,“ segir á vef stofnunarinnar.

„Hrygningin nær venjulega hámarki í apríl-maí úti fyrir vesturströnd Írlands og suðvesturströnd Englands, en á sama tíma er töluverð en dreifðari hrygning allt frá Biscayaflóa og norður fyrir Færeyjar. Á nyrstu svæðunum hefst hrygningin seinna og stendur fram í júlí. Frá árinu 2004 hefur orðið vart við makrílungviði við Suður- og Vesturströnd Íslands.“

Makrílseiðin aldursgreind

Í rannsókninni var stuðst við niðurstöður úr fjölþjóðlegum rannsóknarleiðöngrum á vegum Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES), á hrygningu makríls í Norðaustur-Atlantshafi árin 2010 og 2013.

„Hafstraumar við suðurströnd landsins voru kortlagðir með aðstoð hafstraumalíkansins CODE sem þróað hefur verið við Háskóla Íslands. Makrílseiði af Íslandsmiðum voru aldursgreind og líkt var eftir reki ungviðis frá veiðisvæði að klak- og hrygningarsvæði með því að reikna út rek með straumum aftur á bak í tíma. Þannig voru, ásamt fyrirliggjandi upplýsingum um hrygningu makríls við Ísland, leiddar líkur að því hvar makrílungviðið klaktist út.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »