Leif Av Reyni til liðs við Arctic Fish

Leif Av Reyni hefur störf á næstu dögum.
Leif Av Reyni hefur störf á næstu dögum.

Leif Av Reyni hefur verið ráðinn verkefnastjóri sjó- og landeldis hjá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish, sem starfar á sunnanverðum Vestfjörðum. Leif, sem er reynslumikill stjórnandi úr færeysku fiskeldi, mun bera ábyrgð á frekari uppbyggingu og þróun seiðaeldisstöðvar Arctic Fish í Norður-Botni í Tálknafirði og ekki síst með aukna endurnýtingu fyrir augum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en þar segir að Leif muni einnig vinna að uppsetningu nýrra eldissvæða fyrirtækisins í Patreksfirði og Tálknafirði. Leif hefur störf á næstu dögum.

Síðustu átta ár starfaði Leif sem framkvæmdastjóri ferskvatnsafurða hjá Bakkafrosti í Færeyjum og þar áður var hann framkvæmdastjóri hjá Vestlax-fiskeldisfyrirtækinu. Hann sat í stjórn rannsóknarstöðvar fiskeldis í Færeyjum á árunum 2006-2016 og situr í stjórn JT Electrics sem framleiðir búnað til fiskeldis. Leif býr yfir djúpri og yfirgripsmikilli þekkingu á fiskeldi og hefur m.a. verið ráðgjafi fiskeldisfyrirtækja í Chile og komið að uppsetningu bólusetningarkerfa í fiskeldi í Ghana.

Hefur ástríðu fyrir fiskeldi

Leif er með B.Sc.-gráðu í fiskeldisfræðum frá Háskólanum í Sogndal í Noregi og M.Sc.-gráðu í fiskeldisfræðum frá Háskólanum í Stirling í Skotlandi. Hann er fæddur og uppalinn í Þórshöfn í Færeyjum og fluttist síðar í Kollafjörð ásamt eiginkonu sinni, Lailu, að námi loknu. Saman eiga Leif og Laila tvö börn, þau Natösju og Eivind.

Leif hefur ástríðu fyrir fiskeldi og öllu sem því viðkemur, ásamt því að stunda skíði og köfun. Leif þekkir nú þegar vel til íslensks fiskeldis, en í starfi sínu hjá Bakkafrosti vann hann náið með hinum rótgróna seiða- og hrognaframleiðanda Stofnfiski, sem og öðrum fiskeldisfyrirtækjum hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,80 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,33 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,80 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,33 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »