Rekstrartekjur HB Granda árið 2018 námu 210,7 milljónum evra, en voru 217,3 milljónir evra árið áður. Hagnaður fyrirtækisins nam 32,2 milljónum evra á sama tímabili, en hann var 24,8 milljónir evra árið 2017.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HB Granda þar sem kynnt er afkoma hlutafélagsins á síðasta ári. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, segir afkomuna óásættanlega.
„Rekstrarafkoma HB Granda var ekki ásættanleg á árinu 2018. Hagnaður fyrirtækisins hefur verið að minnka á síðustu árum vegna styrkingar íslenskrar krónu og hærri veiðigjalda,“ er haft eftir Guðmundi í tilkynningu.
„Á seinni hluta ársins 2018 veiktist íslenska krónan og það styrkir útflutningsfyrirtæki. Árið 1992 fjárfesti HB Grandi í sjávarútvegsfyrirtæki í Chile. Þetta fyrirtæki seldi laxeldisfyrirtæki sitt á síðasta ári og fékk HB Grandi töluverðan hagnað af þeirri sölu og skýrir það að hluta góða afkomu á síðasta ársfjórðungi 2018.“
Laun og launatengd gjöld 70,8 milljónir evra
Eins og áður sagði námu rekstrartekjur félagsins á síðasta ári 210,7 milljónum evra, samanborið við 217,3 milljónir evra árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 36,8 milljónir evra eða 17,5% af rekstrartekjum, en var 35,7 milljónir evra eða 16,4% árið áður.
Meðalfjöldi ársverka árið 2018 var 773 en var 839 árið 2017. Laun og launatengd gjöld námu samtals 70,8 milljónum evra, samanborið við 73,9 milljónir evra árið áður, eða 9,0 milljarðar króna á meðalgengi ársins samanborið við 8,9 milljarða árið áður.
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2018 (1 evra = 127,37 ISK) verða tekjur 26,8 milljarðar króna, EBITDA 4,7 milljarðar og hagnaður 4,1 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2018 (1 evra = 132,86 ISK) verða eignir samtals 88,6 milljarðar króna, skuldir 51,5 milljarðar og eigið fé 37,1 milljarðar.