Þingsályktunartillaga um fullgildingu Norður-Íshafssamningsins

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu utanríkisráðherra um að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um fullgildingu samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Með samningnum skuldbinda samningsaðilar sig til þess að hefja ekki atvinnuveiðar á þeim hluta Norður-Íshafsins sem telst vera úthaf. Fram til þessa hafa veiðar á þessu hafsvæði verið útilokaðar en sökum loftslagsbreytinga kunna möguleikar á úthafsveiðum á þessu hafsvæði að opnast á næstu árum. Til að bregðast við þessum breyttu aðstæðum skuldbinda samningsaðilar sig til þess að hefja ekki slíkar veiðar fyrr en tryggt er að slíkar veiðar megi stunda á grundvelli fiskveiðistjórnunar sem byggi á vísindalegu mati á veiðiþoli viðkomandi fiskistofna og áhrifum slíkra veiða á viðkvæm vistkerfi á þessum slóðum. 

„Þessi samþykkt ríkisstjórnarinnar er í góðu samræmi við áherslur stjórnarsáttmálans á umhverfisvernd og sjálfbærni á norðurslóðum, og fyllilega í takt við fyrirhugaðar formennskuáherslur okkar í norðurskautsráðinu. Ég vænti þess að þetta mikilvæga málefni fái góðar viðtökur á Alþingi enda ber okkur skylda að sýna bæði ábyrgð og framsýni vegna þeirra breytinga sem eru fyrirsjáanlegar á norðurslóðum vegna loftslagsbreytinga,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Samningurinn var undirritaður 3. október 2018 í Ilulissat á Grænlandi. Auk Íslands var samningurinn undirritaður af Bandaríkjunum, Danmörku f.h. Grænlands, Japan, Kanada, Kína, Noregi, Rússlandi og Suður-Kóreu auk ESB. 

Tillagan liggur nú fyrir þingflokkum stjórnarflokkanna. Samþykkir þeir tillöguna verður hún lögð fyrir Alþingi sem stjórnartillaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.956 kg
Þorskur 404 kg
Samtals 5.360 kg
17.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 2.474 kg
Þorskur 222 kg
Skarkoli 27 kg
Rauðmagi 17 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 2.744 kg
17.4.24 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 16 kg
Samtals 16 kg
17.4.24 Skúli ST 75 Landbeitt lína
Ýsa 2.640 kg
Þorskur 2.364 kg
Steinbítur 163 kg
Karfi 21 kg
Keila 14 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 5.213 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.956 kg
Þorskur 404 kg
Samtals 5.360 kg
17.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 2.474 kg
Þorskur 222 kg
Skarkoli 27 kg
Rauðmagi 17 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 2.744 kg
17.4.24 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 16 kg
Samtals 16 kg
17.4.24 Skúli ST 75 Landbeitt lína
Ýsa 2.640 kg
Þorskur 2.364 kg
Steinbítur 163 kg
Karfi 21 kg
Keila 14 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 5.213 kg

Skoða allar landanir »