„Við höldum í vonina“

Um borð í Víkingi AK á kolmunnaveiðum í færeyskri lögsögu. …
Um borð í Víkingi AK á kolmunnaveiðum í færeyskri lögsögu. Mynd úr safni.

„Okkur vantar gott hol til að klára túrinn og við ættum svo að ná einum túr til viðbótar fyrir sjómannadaginn,“ segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK.

Rólegt er yfir kolmunnaveiðunum að sögn Alberts.

„Það er ekki hægt að segja að það komi okkur beinlínis á óvart en menn voru að vona að hin góða veiði héldist eitthvað áfram,“ er haft eftir honum á vef HB Granda.

Er tal náðist af Alberti síðdegis í gær var Víkingur að toga sunnarlega í hinu svokallaða Ræsi, rúmar 50 mílur suðvestur af Færeyjum. Skipið var þá búið að vera í tæpa viku á miðunum og heildaraflinn kominn í rúmlega 2.100 tonn.

Jón Kjartansson á leiðinni

„Við höfum verið að toga lengi eða upp í einn sólarhring og við höfum verið að hífa um 300 tonn eftir þann tíma. Aflinn er reyndar minni í dag en við höldum í vonina. Kolmunninn er mjög dreifður og það er erfitt að eiga við hann fyrr en hann þéttir sig.“

Ekkert hefur heyrst af veiði suður undir alþjóðlega hafsvæðinu og svo virðist sem að kolmunninn sé genginn norðar.

„Það var norskt skip sem leitaði að kolmunna þarna suður frá en fann ekkert. Hann kom hingað í gær og er nú að toga norður Ræsið.“

Þrjú íslensk skip eru nú á veiðisvæðinu, eins og áður sagði. Auk Víkings eru þar Venus NS og Aðalsteinn Jónsson SU, en Jón Kjartansson SU er á leiðinni. Að auki er saman kominn nokkur fjöldi skipa, aðallega frá Rússlandi og Færeyjum. Venus er þá á sínu öðru holi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »