„Þessi niðurstaða hangir enn á sömu rökleysunni sem á sér ekki stoð í lögum félagsins og við höfum óskað eftir fundi með kjörstjórn á morgun og vona ég að þeir verði við því,“ segir Heiðveig María Einarsdóttir, innt eftir viðbrögðum við úrskurði kjörstjórnar Sjómannafélags Íslands þess efnis að framboð B-lista hennar sé ógilt og A-listi því sjálfkjörinn í stjórn félagsins.
Heiðveig segir að færa megi rök fyrir því að kjörstjórnin sé vanhæf. „Eins og við höfum áður bent á situr í þriggja manna kjörstjórn Guðmundur Hallvarðsson, sem við höfum fengið staðfest að er á sjálfkjörna listanum, og tilheyrir þar að auki engri starfsgrein innan félagsins.“
Þannig sé A-listinn einnig ógildur, en fulltrúar B-listans hafa óskað eftir því að fá listann sendan. „Fulltrúar okkar funduðu með kjörstjórn í vikunni og fengu ekki að sjá þennan A-lista heldur. Það eru að sjálfsögðu ekki eðlileg vinnubrögð.“
„Það er miðað við kosningalög þegar okkur er gefinn þessi frestur til að lagfæra listann og þá hljóta almenn kosningalög að gilda um annað, eins og t.d. vanhæfi kjörstjórnar. Það má líka benda á það að formaður kjörstjórnar, Jónas Þór Jónasson, er lögmaðurinn sem var ráðgefandi og sótti málið gegn mér fyrir félagsdómi og öllum er kunnugt um að hann hafi tapað.“
Heiðveig segir segir málinu engan veginn lokið og að fulltrúar B-listans séu búnir að bera úrskurðinn undir ráðgjafa sína og séu að meta næstu skref, en að öllum líkindum þurfi að skera úr um málið fyrir dómstólum enn á ný.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 91.675 kg |
Ufsi | 10.767 kg |
Þorskur | 692 kg |
Langa | 300 kg |
Samtals | 103.434 kg |
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 708 kg |
Samtals | 708 kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 91.675 kg |
Ufsi | 10.767 kg |
Þorskur | 692 kg |
Langa | 300 kg |
Samtals | 103.434 kg |
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 708 kg |
Samtals | 708 kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |