ÚR kaupir fiskiskip frá Grænlandi

Félagið verður með tvö skip í rekstri.
Félagið verður með tvö skip í rekstri. mbl.is/sisi

Útgerðarfélag Reykjavíkur hefur gengið frá kaupum á grænlenska fiskiskipinu Aja Aaju, sem smíðað var árið 1988.

Skipið hefur hlotið nafnið Sólborg og verður gert út til netaveiða á grálúðu, að sögn Runólfs Viðars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra félagsins.

Félagið verður því með tvö skip í rekstri á næstu misserum, það er Kleifabergið og Sólborgu.

Unnið er að því að gera Sólborgu reiðubúna til veiða og býst Runólfur við að haldið verði á sjóinn öðru hvoru megin við helgina ef allt gengur eftir. Hann bætir við að reksturinn sé ágætur og að veiðar gangi vel.

„Kleifabergið er á landleið frá Rússasjó með fullfermi. Það gengur vel að veiða og það gengur vel að selja.“

„Allir komnir í skotgrafirnar“

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úrskurðaði fyrr í mánuðinum að Fiskistofa hefði brotið gegn áhöfn og útgerð þegar stofnunin svipti Kleifaberg leyfi til veiða í atvinnuskyni í tólf vikur, vegna meints brottkasts afla.

„Við erum virkilega ánægðir með að því máli sé lokið og að við getum haldið áfram daglegum störfum. Við eigum mikið undir hjá Fiskistofu og það er fínt að geta skilið þetta eftir og litið fram á veginn.“

Runólfur segir mikinn tíma og orku fara í að fylla út eyðublöð og útskýra ýmis mál fyrir fulltrúum stjórnsýslunnar. „Þetta tekur mikið á. Í stað þess að hringja kannski í okkur, spyrjast fyrir og fá greinargóðar útskýringar á jafnvel fimm mínútum, þá er sent formlegt bréf sem þarf síðan að fara í lögfræðiferli og þar fram eftir götunum. Um leið eru þá allir komnir í skotgrafirnar.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 449,06 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 3.502 kg
Þorskur 2.295 kg
Skarkoli 122 kg
Ýsa 49 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 5.978 kg
19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 449,06 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 3.502 kg
Þorskur 2.295 kg
Skarkoli 122 kg
Ýsa 49 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 5.978 kg
19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg

Skoða allar landanir »