SVG þakkar Gildi fyrir söluna

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) lýsir yfir ánægju sinni með …
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) lýsir yfir ánægju sinni með þá ákvörðun stjórnar Gildis lífeyrissjóðs að selja hlutabréf lífeyrissjóðsins í Brimi hf., sem áður hét HB Grandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) lýsir yfir ánægju sinni með þá ákvörðun stjórnar Gildis lífeyrissjóðs að selja hlutabréf lífeyrissjóðsins í Brimi hf., sem áður hét HB Grandi, og þakkar Gildi fyrir að taka þessa ákvörðun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SVG.

Einnig kemur fram í tilkynningunni að Einar H. Harðarson formaður SVG hafi lagt fram tillögu um að Gildi ætti að selja öll hlutabréf sín í HB Granda/Brimi á sjóðsfélagafundi lífeyrissjóðsins í nóvember síðastliðnum.

Sú tillaga var rökstudd með því að Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti hluthafi sjávarútvegsfyrirtækisins, hefði með ákvörðunum síðastliðin misseri „leynt og ljóst grafið undan stöðu sjómanna í landinu og unnið gegn hagsmunum þeirra“.

Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar og staðgengill framkvæmdastjóra Gildis lífeyrissjóðs, ræddi söluna í Morgunblaðinu í gær, en um var að ræða 8,49% hlut í Brimi, sem seldur var til FISK Seafood. Ákvörðunin var tekin í kjölfar kaupa Brims á sölufélögum í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur, sem er í eigu forstjóra Brims.

„Þetta voru ekki fyrstu viðskipti Brims við tengd­an aðila, og okk­ur fannst þetta vera orðin helst til um­fangs­mik­il viðskipti við fé­lag í eigu for­stjór­ans og stærsta hlut­haf­ans. Það sem miklu máli skipt­ir í þessu til­felli er hvað kaup­in á sölu­fé­lög­un­um leiða til mik­ill­ar aukn­ing­ar á hlut Útgerðarfé­lags Reykja­vík­ur í fé­lag­inu, og þar með til þreng­inga á eign­ar­haldi Brims, sem olli okk­ur áhyggj­um,“ sagði Davíð.

Gildi á áfram 0,2% hlut í Brimi eft­ir söluna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 444,63 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 311,54 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,48 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.974 kg
Þorskur 88 kg
Skarkoli 60 kg
Ýsa 32 kg
Samtals 2.154 kg
19.4.24 Ísey ÞH 375 Grásleppunet
Grásleppa 2.259 kg
Þorskur 79 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 2.346 kg
19.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grálúða 458 kg
Samtals 458 kg
19.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.968 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 444,63 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 311,54 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,48 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.974 kg
Þorskur 88 kg
Skarkoli 60 kg
Ýsa 32 kg
Samtals 2.154 kg
19.4.24 Ísey ÞH 375 Grásleppunet
Grásleppa 2.259 kg
Þorskur 79 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 2.346 kg
19.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grálúða 458 kg
Samtals 458 kg
19.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.968 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »