West Seafood gjaldþrota

West Seafood var stofnað í mars 2015 en hét þá …
West Seafood var stofnað í mars 2015 en hét þá Fiskvinnsla Flateyrar. Fyrirtækið hefur nú verið úrskurðað gjaldþrota. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

West Seafood ehf. á Flateyri hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Bæjarins besta greindi frá því fyrir helgi en fram kemur í tilkynningu frá Frjálsa lífeyrissjóðnum að fyrirtækið hafi verið úrskurðað gjaldþrota á fimmtudag og fyrrverandi starfsmönnum ráðlagt að gæta að réttindum sínum.

Greint var frá því í kvöldfréttum RÚV að yfir 30 manns ættu kröfur á fyrirtækið allt að 18 mánuði aftur í tímann. Haft er eftir Finnboga Sveinbjörnssyni, formanni Verkalýðsfélags Vestfirðinga, að skuld fyrirtækisins við 32 félagsmenn sé á bilinu tíu til fjórtán milljónir. 

West Seafood var stofnað í mars 2015 en hét þá Fiskvinnsla Flateyrar. Ýmislegt hefur gengið á í starfsemi fyrirtækisins. Í febrúar lagði Vinnueftirlitið til að mynda bann við vinnu við roðflettivél og hausara hjá fyrirtækinu eftir eftirlitsheimsókn á staðinn. Í ljós kom að ör­ygg­is­rofi fyr­ir grind yfir færi­band fram­an á roðfletti­vél virkaði ekki og var lífi og heil­brigði starfs­manna tal­in veru­leg hætta búin. Úrbætur voru gerðar og vinna var leyfð fljótlega að nýju. 

Eignir West Seafood felast einkum í fasteignum, fiskvöru, vinnsluvélum og einu skipi, samkvæmt upplýsingum frá skiptastjóra. Frestur til að lýsa kröfum rennur út í nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.4.24 483,02 kr/kg
Þorskur, slægður 16.4.24 455,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.4.24 225,04 kr/kg
Ýsa, slægð 16.4.24 252,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.4.24 257,55 kr/kg
Ufsi, slægður 16.4.24 256,86 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 16.4.24 209,29 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 684 kg
Þorskur 191 kg
Samtals 875 kg
16.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.682 kg
Þorskur 57 kg
Skarkoli 33 kg
Samtals 1.772 kg
16.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 441 kg
Þorskur 203 kg
Steinbítur 106 kg
Keila 37 kg
Langa 20 kg
Ufsi 16 kg
Skötuselur 12 kg
Karfi 6 kg
Samtals 841 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.4.24 483,02 kr/kg
Þorskur, slægður 16.4.24 455,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.4.24 225,04 kr/kg
Ýsa, slægð 16.4.24 252,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.4.24 257,55 kr/kg
Ufsi, slægður 16.4.24 256,86 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 16.4.24 209,29 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet
Grásleppa 684 kg
Þorskur 191 kg
Samtals 875 kg
16.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.682 kg
Þorskur 57 kg
Skarkoli 33 kg
Samtals 1.772 kg
16.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 441 kg
Þorskur 203 kg
Steinbítur 106 kg
Keila 37 kg
Langa 20 kg
Ufsi 16 kg
Skötuselur 12 kg
Karfi 6 kg
Samtals 841 kg

Skoða allar landanir »