Vilja fá eftirlit með fiskeldinu vestur á firði

Bjarnveig Guðbrandsdóttir sinnir skólabörnum í sundlaug og íþróttahúsi á vetrum …
Bjarnveig Guðbrandsdóttir sinnir skólabörnum í sundlaug og íþróttahúsi á vetrum og ferðafólki á tjaldsvæði og í sundi á sumrin. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Við viljum fá eftirlit með fiskeldi hingað á svæðið, þar sem eldið er stundað. Það yrði betra fyrir laxeldisfyrirtækin og sveitarfélögin hafa kallað eftir því,“ segir Bjarnveig Guðbrandsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps.

Fjöldi starfa hefur skapast við laxeldi í Tálknafirði og Vesturbyggð. Tvær seiðaeldisstöðvar hafa verið byggðar upp í firðinum, Arnarlax í Bæjarvík og Arctic Fish í Norður-Botni en Bjarnveig nefnir þá síðarnefndu Costco Tálknafjarðar vegna stærðar hússins. Þá hafa bæði fyrirtækin hafið laxeldi í firðinum og komið sér upp aðstöðu í þorpinu. 

Geta snúið aftur heim

„Fólk fær vinnu við þetta, bæði þeir sem vilja búa hér áfram og þeir sem farið hafa í burtu, til dæmis í fiskeldisnám, og geta nú snúið heim aftur,“ segir Bjarnveig. Hún segir að fiskeldið hafi komið á góðum tíma því það hafi verið áfall þegar Þórsberg lokaði fiskvinnslu sinni á árinu 2015 og seldi kvótann í burtu. Fólk þurfi að hafa vinnu, annars flytji það sig eitthvað annað.

Hún getur þess einnig að mikil umsvif fylgi uppbyggingu fiskeldisins sem nýtist öðrum fyrirtækjum. Fólkið sem við það vinnur þurfi að gista og borða og það hafi hjálpað ferðaþjónustunni.

Á þönum með posann

Bjarnveig er hrifin af hugmyndinni um að íbúar landsbyggðarinnar fái skattaafslátt. Það yrði hvatning til fólks um að flytja út á land. „Það er orðið svo mikið öngþveiti í Reykjavík en slík hvatning gæti orðið til þess að fólk vildi stíga skrefið og flytja út á land,“ segir hún.

Bjarnveig er forstöðumaður íþróttamannvirkja á Tálknafirði og rekstur tjaldsvæðisins fellur undir hennar verksvið. Hún segir að ferðaþjónustan hafi gengið mjög vel í sumar. Þannig hafi verið nærri 4.100 gestir á tjaldsvæðinu í júlí, mest Íslendingar. „Ég var á stöðugum þönum með posann,“ segir hún. Tjaldsvæðið er við sundlaugina og þykir aðstaðan góð. Þannig hafi verið met í aðsókn að sundlauginni marga daga í sumar.

Greinin birtist upphaflega í Morgunblaðinu 16. september.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 449,06 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 3.502 kg
Þorskur 2.295 kg
Skarkoli 122 kg
Ýsa 49 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 5.978 kg
19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 449,06 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 3.502 kg
Þorskur 2.295 kg
Skarkoli 122 kg
Ýsa 49 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 5.978 kg
19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg

Skoða allar landanir »