Vilja kanna viðhorf útlendinga til hvalveiða Íslendinga

Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar óttast að hvalveiðar Íslendinga hafi slæm áhrif á …
Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar óttast að hvalveiðar Íslendinga hafi slæm áhrif á viðhorf til landsins. mbl.is/Ómar Óskarsson

Átta þingmenn vilja láta kanna viðhorf útlendinga til áframhaldandi hvalveiða Íslendinga og áhrif hvalveiðanna á sölu á íslenskri vöru erlendis, áhuga þeirra á að ferðast til Íslands og áhrif á vörumerkið Ísland. Hafa þeir lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis á Alþingi.

Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Steindór Valdimarsson og Þorsteinn Víglundsson úr Viðreisn, Helga Vala Helgadóttir og Logi Einarsson úr Samfylkingunni, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir úr Pírötum og Andrés Ingi Jónsson, óháður þingmaður.

Þau beina sjónum sínum sérstaklega að viðhorfi almennings í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum. Tillagan er orðuð þannig:

„Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að láta kanna viðhorf almennings í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum til áframhaldandi hvalveiða Íslands og hvaða áhrif áframhaldandi veiðar geti mögulega haft á:
a.      sölu á íslenskum vörum á mörkuðum í þessum löndum,
b.      ferðamenn sem koma til Íslands eða hafa hug á því,
c.      vörumerkið Ísland.
Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður könnunarinnar þegar þær liggja fyrir, þó eigi síðar en 1. maí 2020.“

Í greinargerð með tillögunni segir að reglugerð sem sjávarútvegsráðherra undirritaði og heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu í landhelgi Íslands til næstu fimm ára sé að mati þingmannanna „meiri háttar ákvörðun“ sem þurfi að skoða betur áður en veiðar hefjist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »