Hættir sem fiskistofustjóri

Eyþór Björnsson fiskistofustjóri hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og …
Eyþór Björnsson fiskistofustjóri hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eyþór Björnsson fiskistofustjóri hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Um er að ræða ný samtök, en í nóvember samþykktu EYÞING, Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga sameiningu félaganna þriggja undir hatti nýrra samtaka, SSNE. 26 umsóknir bárust um stöðuna.

Eyþór hóf störf á Fiskistofu árið 2006 og hefur verið fiskistofustjóri frá 2010. Hann segist stoltur af störfum sínum á Fiskistofu, en um leið sé hann spenntur fyrir nýju starfi.

„Þetta hefur verið mikill reynslutími og lærdómsríkur sem fiskistofustjóri, en líka skemmtilegur“ segir Eyþór. Fiskistofa hóf flutning höfuðstöðva úr Hafnarfirði til Akureyrar haustið 2015 og var Eyþór þá eini starfsmaðurinn stofnunarinnar sem flutti norður. Formlega hófust flutningarnir 1. janúar 2016. Hann segir að vissulega hafi flutningarnir tekið á, en þeir hafi verið komnir í gegn á um þremur árum og Fiskistofa standi sterk eftir.

Breytingar og endurnýjun

„Stofnunin hefur gengið í gegnum miklar breytingar og mikla endurnýjun. Ég tel að þetta sé góður tími til að skipta um vettvang, bæði fyrir mig og Fiskistofu, og í minn stað kemur nýr fiskistofustjóri með nýja sýn,“ segir Eyþór. Hann segir ekki frágengið hvenær hann láti af störfum á Fiskistofu.

Starfssvæði nýju samtakanna er frá Tröllaskaga og austur í Langanesbyggð og er áformað að starfsstöðvar verði á Húsavík, Akureyri, Tröllaskaga og í Norður-Þingeyjarsýslu.

„Þarna opnaðist tækifæri sem mér fannst mjög spennandi og ég ákvað að sækjast eftir stöðunni þegar ég sá hana auglýsta. Það er mjög spennandi að fá tækifæri til að vinna að hagsmunum landshlutans. Mörg tækifæri, en líka margar áskoranir,“ segir Eyþór.

Eyþór Björnsson er með B.Sc.-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri, MBA frá Háskóla Íslands og diplomu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Einnig hefur hann lokið diplomanámi í alþjóðlegum hafrétti frá Rhodes Academy í Bandaríkjunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »