Telur „mjög líklegt“ að Þorsteinn Már snúi aftur

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, segir að hans persónulega skoðun …
Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, segir að hans persónulega skoðun sé að líklegast sé að Þorsteinn Már Baldvinsson taki aftur við stjórnartaumunum í fyrirtækinu. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, segir að honum þyki „mjög líklegt“ að Þorsteinn Már Baldvinsson snúi aftur á forstjórastól Samherja þegar Björgólfur lýkur störfum fyrir félagið, en áætlað er að það verði í byrjun apríl.

„Eins og var sagt í upphafi þá var ég ráðinn tímabundið sem forstjóri Samherja og samkvæmt orðanna hljóðan þýðir það að það kemur einhvern tímann endir. Eins og ég sé þetta núna stefnir í að það verði í lok fyrsta ársfjórðungs, í byrjun apríl,“ segir Björgólfur um fyrirhuguð starfslok sín í samtali við mbl.is.

Á þeim tímapunkti er áætlað að innanhússrannsókn, sem Samherji réð norsku lögmannsstofuna Wikborg Rein til að inna af hendi vegna ásakana á hendur fyrirtækinu um mútugreiðslur í Namibíu, verði lokið, eða um það bil.

Björgólfur segir að hann persónulega telji líklegast að Þorsteinn Már taki við forstjórastöðunni að nýju, en hann hafi sjálfur litla hugmynd um það, enda sé ákvörðunin í höndum stjórnar fyrirtækisins.

Þorsteinn Már Baldvinsson steig af forstjórastóli Samherja um miðjan nóvember.
Þorsteinn Már Baldvinsson steig af forstjórastóli Samherja um miðjan nóvember. mbl.is/Styrmir Kári

„Ég náttúrulega er ráðinn af stjórn Samherja og þetta var ákvörðun [Þorsteins Más] að stíga til hliðar. Af orðanna hljóðan, að stíga hliðar, þá finnst mér það líklegt, en auðvitað veit ég ekkert um það, það er stjórn félagsins sem ákveður það, en mér finnst það bara mjög líklegt. En það er bara mín skoðun,“ segir Björgólfur.

„Snúið að stíga inn“

Hann segir að það hafi ekki verið létt verk að stíga inn sem forstjóri fyrirtækisins, sem er til rannsóknar hérlendis og í Namíbíu vegna meintra brota tengdum starfsemi fyrirtækisins í Namibíu, en hann telur að starf hans hafi gengið vel.

„Starfsemi félagsins hefur verið í raun og veru óröskuð þrátt fyrir þessa storma. Það var snúið að stíga inn, en ég þekkti mjög marga í félaginu og margir þekktu mig, svo þetta hefur gengið vel,“ segir Björgólfur, sem eins og fram kom í morgun ætlar sjálfur að gefa kost á sér í stjórn Sjóvár, en hann hefur verið í leyfi frá stjórnarstörfum þar að undanförnu vegna starfa sinna fyrir Samherja.

Er Björgólfur tók við hjá Samherja um miðjan nóvember sagði hann sig frá stjórnarstörfum hjá Festi og sagði sig einnig frá stjórnarstörfum fyrir Íslandsstofu, þar sem hann var raunar stjórnarformaður. Hann segir alls óráðið hvort hann snúi þangað aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 472,24 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 334,19 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 264,30 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 216,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,09 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Grásleppunet
Grásleppa 681 kg
Þorskur 31 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 722 kg
18.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 169 kg
Samtals 169 kg
18.4.24 Alli Gamli Handfæri
Þorskur 2.050 kg
Ufsi 65 kg
Karfi 12 kg
Samtals 2.127 kg
18.4.24 Bobby 7 ÍS 367 Sjóstöng
Þorskur 107 kg
Samtals 107 kg
18.4.24 Aþena ÞH 505 Handfæri
Þorskur 389 kg
Karfi 14 kg
Samtals 403 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 472,24 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 334,19 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 264,30 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 216,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,09 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Grásleppunet
Grásleppa 681 kg
Þorskur 31 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 722 kg
18.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 169 kg
Samtals 169 kg
18.4.24 Alli Gamli Handfæri
Þorskur 2.050 kg
Ufsi 65 kg
Karfi 12 kg
Samtals 2.127 kg
18.4.24 Bobby 7 ÍS 367 Sjóstöng
Þorskur 107 kg
Samtals 107 kg
18.4.24 Aþena ÞH 505 Handfæri
Þorskur 389 kg
Karfi 14 kg
Samtals 403 kg

Skoða allar landanir »