„Við erum að búa í haginn með frumkvöðlastarfi“

Rækjuvinnsla Hólmadrangs er sögð hátækniiðnaður.
Rækjuvinnsla Hólmadrangs er sögð hátækniiðnaður. Ljósmynd/Samherji

„Rækjuiðnaðurinn er hátækniiðnaður og Hólmadrangur er tæknilega fullkomin rækjuvinnsla á Hólmavík,“ segir á vef Samherja í tilefni af nýsköpunarkeppni Sjávarklasa Vestfjarða og Vestfjarðarstofu, „Hafsjór af hugmyndum“.

Rækjuvinnslan Hólmadrangur, dótturfélag Samherja, tekur þátt í verkefninu.

Markmið keppninnar er að hvetja starfandi fyrirtæki, frumkvöðla og nemendur til nýsköpunar, skapa ný störf í sjávarútvegi á Vestfjörðum, auka verðmætasköpun í ólíkum greinum sjávarútvegs og bæta nýtingu hráefnis.

Fram kemur að stjórnendur Hólmadrangs telja að frumkvöðlastarf sé „lykillinn að aukinni verðmætasköpun í rækjuvinnslu, rétt eins og öðrum greinum sjávarútvegs. Þeir líta á verkefnið sem ákveðið stefnumót við framtíðina og binda vonir við að það leysi úr læðingi sköpunarkraft sem muni ýta undir nýja verðmætasköpun á sviði rækjuvinnslu.“

Frumkvöðlastarf mikilvægt

„Frumkvöðlastarf er mjög mikilvægt þegar það miðar að því að efla nýja atvinnuhætti, auka hagkvæmni og finna leiðir til betri orkunýtingar, svo eitthvað sé nefnt. Við erum að búa í haginn með frumkvöðlastarfi,“ er haft eftir Sigurbirni Rafni Úlfarssyni, rekstrarstjóra Hólmadrangs.

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, framkvæmdastjóri Hólmadrangs.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, framkvæmdastjóri Hólmadrangs. Ljósmynd/Samherji

Fyrirtækið á sér langa sögu og hefur rækjuvinnslan verið rekin á sama stað í áratugi. Hólmadrangur er einn af stærstu atvinnurekendunum á Ströndum og flestir starfsmanna hafa langan starfsaldur.

Á vef Vestfjarðarstofu má nálgast frekari upplýsingar um keppnina. Þar segir að „Hafsjór af hugmyndum“ veitir einnig styrki til lokaverkefna á háskólastigi sem eru á masters- og doktorsstigi. Geta verkefnin verið anna náttúru- og tæknigreinum sem og í viðskipta-  og félagsvísindum í tengslum við sjávarútveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »