Mótfallin banni við laxeldi í Eyjafirði

Fjallabyggð hafnar banni við laxeldi í sjókvíum í Eyjafirði án …
Fjallabyggð hafnar banni við laxeldi í sjókvíum í Eyjafirði án þess að málið verði skoðað nánar. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarráð Fjallabyggðar leggst eindregið gegn hugmyndum um að allt laxeldi í sjó verði bannað í Eyjafirði án frekari umræðu og samráðs við sveitarfélög á svæðinu, að því er fram kemur í bókun í fundargerð ráðsins. Kemur bókunin í kjölfar þess að meirihluti bæjarfulltrúa á Akureyri samþykkti bókun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra að leyfa ekki sjókvíar í firðinum.

Þá leggur bæjarráð Fjallabyggðar til að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, óski nú þegar eftir mati á burðarþoli Eyjafjarðar með tilliti til fiskeldis og að í beinu framhaldi verði unnið áhættumat fyrir erfðablöndun vegna mögulegs fiskeldis í Eyjafirði.

„Með uppbyggingu undanfarinna ára hefur laxeldi í sjó haslað sér völl sem mikilvæg atvinnugrein á Íslandi um leið og í ljós hafa komið miklir möguleikar til frekari þróunar greinarinnar,“ segir í bókuninni.

„En á sama tíma og ljóst er að miklir möguleikar eru til þróunar og vaxtar greinarinnar þá er einnig ljóst að varlega þarf að stíga til jarðar. Gæta þarf að áhrifum, jákvæðum sem neikvæðum, á náttúru og hugsanlegum áhrifum á aðrar atvinnugreinar sem og samfélög í heild. Því telur bæjarráð nauðsynlegt að gaumgæfa allar hliðar máls og að það sé best gert með öflugu samtali og samráði allra sveitarfélaga við Eyjafjörð með þátttöku íbúa og þekkingarsamfélags.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,22 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 474,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 203,72 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,31 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,45 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 189,26 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 1.294 kg
Þorskur 108 kg
Ufsi 55 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.467 kg
23.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 870 kg
Keila 202 kg
Steinbítur 189 kg
Ýsa 143 kg
Karfi 31 kg
Samtals 1.435 kg
23.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.955 kg
Þorskur 196 kg
Skarkoli 29 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 2.196 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,22 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 474,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 203,72 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,31 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,45 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 189,26 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 1.294 kg
Þorskur 108 kg
Ufsi 55 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.467 kg
23.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 870 kg
Keila 202 kg
Steinbítur 189 kg
Ýsa 143 kg
Karfi 31 kg
Samtals 1.435 kg
23.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.955 kg
Þorskur 196 kg
Skarkoli 29 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 2.196 kg

Skoða allar landanir »