Virtu ekki grímuskyldu í Herjólfi

Þar sem Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var aflýst þetta árið vegna …
Þar sem Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var aflýst þetta árið vegna kórónuveirunnar, flutti Herjólfur mun færri farþega um verlunarmannahelgina en ella mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Farþegar í Herjólfi virtu ekki grímuskyldu sem nú er í gildi um borð í skipinu. Kona sem sigldi með ferjunni kl 17:00 í gær sendi mbl.is myndir af farþegum um borð sem báru andlitsgrímu en höfðu dregið hana niður fyrir höku svo vit þeirra voru ekki hulin. Konan segist hafa gert áhöfn viðvart en að hún hafi ekki aðhafst í málinu.

Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir í samtali við mbl.is að hann hafi frétt af málinu. Hann segir að gerð sé skýlaus krafa um að bæði áhöfn og farþegar beri grímu um borð. „Ferðin tekur ekki langan tíma og því ættu allir að geta virt þessar reglur. Við þurfum öll að aðlaga okkur að nýjum aðstæðum og við verðum að standa saman.“ Hann segir jafnframt að gerðar hafi verið ráðstafanir í kjölfarið á þessu atviki og nú komist enginn upp með að bera ekki andlitsgrímu.

Þar sem Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var aflýst þetta árið vegna kórónuveirunnar flutti Herjólfur mun færri farþega um verslunarmannahelgina en ella. „Þetta er auðvitað okkar stærsti mánuður og það er gríðarlega erfitt að missa þessa þjóðhátíðartörn,“ Aðspurður segir hann tekjutapið mikið.

Þrátt fyrir þetta segir Guðbjartur góðan anda ríkja um borð í Herjólfi. „Við vinnum bara saman að því að láta þessar aðstæður ekki á okkur fá. Það verður gaman að geta komist aftur á fullt þegar við náum tökum á þessari veiru. Þangað til verðum við bara að fara eftir reglum og standa saman,“ segir hann bjartsýnn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »