Útgerðin hafnaði beiðnum sóttvarnayfirvalda

Sjómannasamband Íslands telur Hraðfrystihúsið Gunnvör hafi sýnt áhöfninni á Júlíusi …
Sjómannasamband Íslands telur Hraðfrystihúsið Gunnvör hafi sýnt áhöfninni á Júlíusi Gerimundssyni lítilsvirðingu og telur að fyrirtækið hafi hugsað frekar til eigin fjárhagshagsmuna frekar en heilsu skipverja þegar beiðni sóttvarnayfirvalda á Vestfjörðum um að sigla skipinu til hafnar var hafnað. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson

Umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum óskaði eftir því að frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni ÍS yrði snúið til hafnar þegar grunur vaknaði um kórónuveirusmit um borð. Þessi beiðni var ítrekuð en útgerðarfyrirtækið Hraðfrystihúsið Gunnvör hafnaði þessum beiðnum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá stjórn Sjómannasambands Íslands. Þar segir að stjórnin hafi fengið umræddar upplýsingar frá umdæmislækni sóttvarna á Vestfjörðum og að stjórnin líti viðbrögð útgerðarinnar „alvarlegum augum þar sem ekki dylst nokkrum manni að farsótt geisar í landinu“.

Bent er á að bæði samtök sjómanna og útgerðarmanna hafi sent í byrjun faraldursins út tilmæli til útgerða og sjómanna um hvernig ætti að bregðast við kæmu upp veikindi um borð. „Þau voru og eru alveg skýr. Útgerðin virðist hafa hunsað þessi tilmæli með öllu og hélt skipinu til veiða þrátt fyrir að skipverjar veiktust hver af öðrum.“

Þá telur stjórn Sjómannasambandsins útgerðina hafa lagt áherslu á eigin fjárhagslegan ávinning í stað heilsu áhafnarinnar. „Sjómannasamband Íslands fordæmir þá lítilsvirðingu sem útgerðin sýndi áhöfn skipsins með því að halda áfram veiðum þrátt fyrir mikil veikindi um borð,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.004 kg
Samtals 1.004 kg
20.4.24 Breki VE 61 Botnvarpa
Langa 1.473 kg
Samtals 1.473 kg
20.4.24 Elín ÞH 82 Grásleppunet
Grásleppa 4.019 kg
Þorskur 221 kg
Skarkoli 23 kg
Steinbítur 12 kg
Samtals 4.275 kg
20.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 3.502 kg
Þorskur 2.295 kg
Skarkoli 122 kg
Ýsa 49 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 5.978 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.004 kg
Samtals 1.004 kg
20.4.24 Breki VE 61 Botnvarpa
Langa 1.473 kg
Samtals 1.473 kg
20.4.24 Elín ÞH 82 Grásleppunet
Grásleppa 4.019 kg
Þorskur 221 kg
Skarkoli 23 kg
Steinbítur 12 kg
Samtals 4.275 kg
20.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 3.502 kg
Þorskur 2.295 kg
Skarkoli 122 kg
Ýsa 49 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 5.978 kg

Skoða allar landanir »