Mestu útflutningsverðmætin á þessari öld

Útflutningur sjávarafurða í apríl hefur ekki verið meiri á þesssari …
Útflutningur sjávarafurða í apríl hefur ekki verið meiri á þesssari öld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,3 milljörðum króna í apríl og er það 54% aukning miðað við sama mánuð í fyrra. Aukningin er hins vegar enn meiri þegar tekið er tillit til gengisáhrifa, en þá mælist aukningin 61%, að því er fram kemur í færslu á Radarnum.

„Þessi mikla aukning litast vissulega af áhrifum COVID-19 á útflutning sjávarafurða í apríl í fyrra, enda var mikil ringulreið á mörkuðum á þeim tíma og verulegt rask varð á flutningum á milli landa,“ segir í færslunni, en bent er á að fleiri breytur hafa áhrif á þessa þróun og er bent á að verðmæti útfluttra sjávarafurða á föstu gengi hefur ekki verið meira í aprílmánuði frá árinu 2002.

336 prósent

Útflutningsverðmæti á frystum heilum fiski nam 3,3 milljarða í apríl og er það um 161% aukning frá sama mánuði í fyrra. Aukningin skýrist líklega af útflutningi á heilfrystri loðnu, en engin loðna var flutt út í apríl í fyrra í kjölfar tveggja ára loðnubrests.

Þá varð myndarleg aukning í vöruflokknum „aðrar sjávaraurðir“ og nam útflutningsverðmæti þeirra 5,5 milljörðum króna sem er 336% meira en í aprílmánuði í fyrra. Á radarnum segir að ætla megi að „fryst loðnuhrogn séu afar fyrirferðamikil“ í þessum flokki. „Loðnan er ein mikilvægasta fisktegundin við Ísland og hefur skilað næstmestum útflutningsverðmætum á eftir þorskinum af öllum fisktegundum undanfarinn áratug.“

93 milljarðar

Á fyrsta ársfjórðungi nam útflutningsverðmæti sjávarafurða rúmlega 93 milljörðu  króna og er það um 15% hærra en á sama tímabili í fyrra, en aukningin nemur 10% ef tekið er tillit til gengisáhrifa. Á síðastliðnum áratug hafa verðmætin aðeins einu sinni verið meiri en það var 2019 þegar útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrsta ársfjórðungi nam 93,8 milljörðum króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »