Gauti nýr framkvæmdastjóri Háafells

Gauti Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Háafells.
Gauti Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Háafells. Ljósmynd/Aðsend

Sjávarútvegsfræðingurinn Gauti Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Háafells ehf. að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Háafell er dótturfélag Hraðfrystihússins Gunnvarar hf.

Fram kemur í tilkynningunni að fram undan sé „mikil uppbygging á vegum Háafells en félagið hefur stundað fiskeldi í Ísafjarðardjúpi frá árinu 2001. Háafell hefur leyfi fyrir 800 tonna eldi á laxi og regnbogasilungi í seiðaeldisstöð sinni á Nauteyri ásamt 7.000 tonna leyfi í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi fyrir eldi á regnbogasilungi. Nú er eldi á regnbogasilungi á vegum félagsins á tveimur stöðum í Ísafjarðardjúpi, í Álftafirði og undir Bæjahlíð innan við Æðey. Auglýst hefur verið 6.800 tonna laxeldisleyfi Háafells í Ísafjarðardjúpi og stefnt er að útsetningu fyrstu laxaseiða í Ísafjarðardjúp snemma næsta vor.“

Gauti er 28 ára Ísfirðingur og er með B.Sc.-próf í sjávarútvegsfræðum frá háskólanum í Tromsø og vinnur nú að meistaraverkefni í sömu fræðum sem hann lýkur næsta vor. Þá hefur hann unnið fyrir Háafell frá árinu 2017 sem verkefnastjóri og þekkir því vel til reksturs og starfsemi Háafells.

Gauti er í sambúð með Elenu Dís Víðisdóttur verkfræðinema og eiga þau von á sínu fyrsta barni í sumar.

„Það er mikill fengur fyrir félagið að tryggja okkur starfskrafta Gauta til þess að takast á við áskoranir í ört vaxandi fyrirtæki. Og einstaklega ánægjulegt að vel menntað fólk fái starf við hæfi í heimbyggð. Hraðfrystihúsið-Gunnvör hefur verið með starfsemi hér við Djúp í rúm 80 ár og hyggst vera það áfram. Því er mikilvægt að tryggja okkur gott fólk til starfa að þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru í fiskeldi á Íslandi,“ segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar.

„Það er heiður að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu á vegum Háafells. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa undanfarin 20 ár öðlast mikla reynslu af fiskeldi í Ísafjarðardjúpi og vandvirkni þeirra og sýn hafa heillað mig. Ég hlakka til að takast á við þessa áskorun með góðum samstarfsmönnum og er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt,“ segir Gauti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.464 kg
Þorskur 52 kg
Samtals 1.516 kg
20.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 2.145 kg
Þorskur 43 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.191 kg
20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.464 kg
Þorskur 52 kg
Samtals 1.516 kg
20.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 2.145 kg
Þorskur 43 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.191 kg
20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg

Skoða allar landanir »