Ný reglugerð um safnskip hefur tekið gildi

Dæmi um slík safnskip er varðskipið Óðinn sem liggur við …
Dæmi um slík safnskip er varðskipið Óðinn sem liggur við bryggju við Grandagarð og er hluti af Sjómannasafni Reykjavíkur. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ný reglugerð um safnskip, sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirritaði, hefur tekið gildi.

Með reglugerðinni eru settar sérreglur um skip, sem eru 50 ára og eldri og rekin í menningarlegum tilgangi. Dæmi um slík safnskip er varðskipið Óðinn sem liggur við bryggju við Grandagarð og er hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að reglugerðin hafi verið sett með vísan í skipalög (nr. 66/2001) sem heimilar ráðherra að undanþiggja safnskip frá tilteknum kröfum laga og reglna með vísan til menningarlegs gildis þess.

Í reglugerðinni er heimilað að safnskip sé búið líkt og lög mæltu þegar skipið var smíðað og tekið til rekstrar með vissum takmörkunum, s.s. varðandi björgunarbúnað, sem uppfylla þarf nútímakröfur. Þá kemur einnig fram í tilkynningu að reglugerðin hafi verið undirbúin í samvinnu við Samgöngustofu sem mun halda utan um skráningu safnskipa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,04 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,55 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,04 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,55 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »