Fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið sem kolefnisjafnar

Að lokinni undirskrift samningsins á aðalskrifstofu Skógræktarinnar. Frá vinstri: Gunnlaugur …
Að lokinni undirskrift samningsins á aðalskrifstofu Skógræktarinnar. Frá vinstri: Gunnlaugur Guðjónsson, sviðstjóri rekstrarsviðs Skógræktarinnar, Páll Snorrason, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Eskju, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Erna Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Eskju, og Sigrún Ísaksdóttir, skrifstofustjóri hjá Eskju. Ljósmynd/Skógræktin

Eskja hf. á Eskifirði mun vera fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið sem ræðst í kolefnisjöfnun í samræmi við kröfur Loftslagsráðs og hefur útgerðarfélagið samið við Skógræktina um að þróa kolefnisverkefni í landi jarðarinnar Freyshóla á Fljótsdalshéraði.

Á Freyshólum hyggst fyrirtækið binda kolefni með nýskógrækt á um 30 hektara svæði og er hlutverk Skógræktarinnar að gera ræktunaráætlun fyrir svæðið, verkefnalýsingu fyrir kolefnisverkefnið ásamt kolefnisspá og kostnaðaráætlun til 50 ára. Fram kemur í færslu á vef Skógræktarinnar að stefnt sé að því að hefja gróðursetningu í byrjun næsta sumars og því á að ljúka vorið 2023. Fullgróðursett verður í svæðið og við tekur vaxtartími skógarins með reglulegum úttektum.

Með gróðursetningunnni verða til vottaðar kolefniseiningar á móti samsvarandi losun vegna starfsemi Eskju. „Gangi allt að óskum verða fyrstu vottuðu einingarnar til að fimm árum liðnum frá því að gróðursetningu lýkur,“ segir í færslunni.

Eskja gerir meðal annars út Aðalsteinn Jónsson SU-011.
Eskja gerir meðal annars út Aðalsteinn Jónsson SU-011. Ljósmynd/Eskja

Fluttu vinnslu á land

Eskja hefur þegar gripið til ýmissa aðgerða til að draga úr kolefnisspori félagsins og hefur því meðal annars verið lýst í samfélagsskýrslu Eskju sem kom út fyrr á árinu.

Þar segir að félagið hafi „fjárfest í lausnum sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og sjálfbærni“ og er meðal annars vísað til þess að vinnsla hafi verið færð í land þar sem vinnslan notar rafmagn. „Allt rafmagn sem Eskja kaupir kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum, annaðhvort vatnsafli eða jarðvarma,“ segir í samfélagsskýrslunni.

Jafnframt er lögð áhrersla á að fjárfesta í sparneytnari skipum til að draga úr olíunotkun en hún hefur farið minnkandi á undanförnum árum. Þá hefur Eskja alfarið hætt notkun á svartolíu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »